Gengið til friðar í 35 ár

Íslenskir friðarsinnar hafa efnt til friðargöngu niður Laugaveginn á Þorláksmessu undanfarin þrjátíu og fimm ár. Óhætt er að segja að gangan sé orðin ómissandi þáttur í jólaundirbúningnum og tekur fjöldi fólks sér hlé frá tiltektum og innkaupum rétt fyrir jólin til að leggja sitt af mörkum og styðja kröfuna um frið og afvopnun í heiminum. Undanfarin ár hafa slíkar göngur einnig verið á Þorláksmessu á Akureyri og á Ísafirði og verður svo einnig nú.

Að venju stendur Samstarfshópur friðarhreyfinga fyrir göngunni í Reykjavík þann 23.desember. Safnast verður saman á Hlemmi frá klukkan 17:45 og leggur gangan af stað klukkan 18:00. Fólk er hvatt til að mæta tímanlega. Friðarhreyfingarnar selja kerti fyrir göngufólk á Hlemmi. Í lok göngu verður fundur við Austurvöll  þar sem Guðrún Margrét Guðmundsdóttir flytur ávarp.  Söngfólk úr Hamrahlíðarkórnum og Kór Menntaskólans við Hamrahlíð syngur í göngunni og við lok fundar undir stjórn  kórstjórans Þorgerðar Ingólfsdóttur.

Friðargangan á Ísafirði leggur af stað frá Ísafjarðarkirkju klukkan 18:00 og er gengið  niður á Silfurtorg. Þar verður hefðbundin dagskrá með tónlistarflutningi, ljóðalestri og hugvekju sem Pétur Markan flytur að þessu sinni.

Á Akureyri stendur Friðarframtak fyrir blysför í þágu friðar Akureyri. Hún hefst klukkan 20 frá Samkomuhúsinu Hafnarstræti og er gengið út á Ráðhústorg. Ræðumaður er dr. Sigrún Stefánsdóttir fjölmiðlafræðingur.

Samstarfshópur friðarhreyfinga minnir á að málstaður og rök friðarsinna skipta jafn miklu máli nú og fyrir þrjátíu árum. Stöðugt berast fregnir af ofbeldisverkum þjóða á milli og innan samfélaga. Óheyrilegum fjárhæðum er enn sóað í vígvæðingu og ekkert lát virðist á hernaðarátökum í heiminum.

Samstarfshópur friðarhreyfinga:
BSRB, 
Félag leikskólakennara, Friðar- og mannréttindanefnd Æskulýðssambands Þjóðkirkjunnar, Menningar og friðarsamtökin MFÍK, Samhljómur menningarheima og Samtök hernaðarandstæðinga.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?