Gengið til friðar í þrjátíu og fimm ár

Íslenskir friðarsinnar hafa efnt til friðargöngu niður Laugaveginn á Þorláksmessu undanfarin þrjátíu og fimm ár. Óhætt er að segja að gangan sé orðin ómissandi þáttur í jólaundirbúningnum og tekur fjöldi fólks sér hlé frá tiltektum og innkaupum rétt fyrir jólin til að leggja sitt af mörkum og styðja kröfuna um frið og afvopnun í heiminum. Undanfarin ár hafa slíkar göngur einnig verið á Þorláksmessu á Akureyri og á Ísafirði og verður svo einnig nú.

Að venju stendur Samstarfshópur friðarhreyfinga fyrir göngunni í Reykjavík þann 23.desember. Safnast verður saman á Hlemmi frá klukkan 17:45 og leggur gangan af stað klukkan 18:00. Fólk er hvatt til að mæta tímanlega. Friðarhreyfingarnar selja kerti fyrir göngufólk á Hlemmi. Í lok göngu verður fundur við Austurvöll  þar sem Eyrún Ósk Jónsdóttir, flytur ávarp.  Söngfólk úr Hamrahlíðarkórnum og Kór Menntaskólans við Hamrahlíð syngur í göngunni og við lok fundar undir stjórn  kórstjórans Þorgerðar Ingólfsdóttur. Fundarstjóri er Kolbeinn Óttarson Proppé.

Friðargangan á Ísafirði leggur af stað frá Ísafjarðarkirkju klukkan 18:00 og er gengið  niður á Silfurtorg. Ræðumaður verður Hrefna Magnúsdóttir.

Á Akureyri stendur Friðarframtak fyrir blysför í þágu friðar. Hún hefst klukkan 20 frá Samkomuhúsinu Hafnarstræti og er gengið út á Ráðhústorg. Ræðumenn eru þær Brák Jónsdóttir og Karólína Rós Ólafsdóttir nemendur úr Menntaskólanum á Akureyri. Rakel Sigurðardóttir syngur

Samstarfshópur friðarhreyfinga minnir á að málstaður og rök friðarsinna skipta jafn miklu máli nú og fyrir þrjátíu árum. Stöðugt berast fregnir af ofbeldisverkum þjóða á milli og innan samfélaga. Óheyrilegum fjárhæðum er enn sóað í vígvæðingu og ekkert lát virðist á hernaðarátökum í heiminum.

Samstarfshópur friðarhreyfinga er samansettur af:
Félag leikskólakennara.
BSRB
Menningar og friðarsamtökin MFÍK
Samhljómur menningarheima
Samtök hernaðarandstæðinga
SGI á Íslandi mannúðar og friðarsamtök búddista


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?