Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, prófessor í félagsfræði við HÍ hélt erindi á formannaráðsfundi í morgun undir yfirskriftinni „Notkun gervigreindar við stjórnun starfsfólks: Hvað er í gangi og hverju ber að varast?“
Í erindinu fjallaði hún um ýmsar siðferðilegar og samfélagslegar áskoranir sem fylgja notkun gervigreindar þegar hugað er að hagsmunum launafólks. Hún rakti hvernig gervigreind er í síauknum mæli notuð við stjórnun vinnustaða og hvernig hún er að breyta stjórnunaraðferðum og starfsháttum. Jafnframt ræddi hún hvernig stéttarfélög og önnur samtök launafólks geti haft áhrif á innleiðingu gervigreindar á vinnustöðum.
Gervigreind er þjálfuð á miklu magni gagna sem geta falið í sér skekkjur og fordóma. Af þeim sökum getur hún verið hlutdræg og viðhaldið mismunun. Hún getur endurspeglað og jafnvel ýkt fyrirliggjandi staðalmyndir og ójöfnuð í samfélaginu. Verkalýðshreyfingin þarf því að vera á varðbergi gagnvart innleiðingu gervigreindar á vinnumarkaði og áhrifum hennar á réttindi, kjör og líðan starfsfólks.