Góður gangur í byggingu íbúðakjarna Bjargs

Uppbygging við Móaveg í Spönginni í Grafarvogi gengur vel.

Góður gangur er í byggingu íbúðakjarna Bjargs íbúðafélags á þeim tveimur lóðum þar sem uppbygging er hafin. Vel gengur að taka á móti umsóknum og rétt að minna félagsmenn sem hafa hug á að sækja um að gera það fyrir lok júlí. Hátt í 1.000 hafa náu sent inn umsókn til Bjargs.

Steypuvinna er nú hafin í Urðarbrunni í Úlfarsárdal þar sem unnið er að byggingu 83 nýrra leiguíbúða. Þá er einnig góður gangur uppbyggingu á Móavegi í Spönginni í Grafarvogi þar sem 155 íbúðir munu rísa. Alls er gert ráð fyrir að framkvæmdir hefjist við byggingu samtals 450 íbúða á árinu og rúmlega 1.000 til viðbótar á næstu þremur til fjórum árum.

Reiknað er með að Bjarg íbúðafélag muni afhenda fyrstu leigjendum sínum íbúðir í júní 2019 og hefur talsverður fjöldi þegar skráð sig á biðlista eftir íbúðum. Íbúðum verður úthlutað til þeirra sem skrá sig á biðlista og uppfylla skilyrði um tekjur í þeirri röð sem skráningar berast. Undantekning verður þó gerð í upphafi þannig að skráningum á biðlista sem berast fyrir 31. júlí fara í pott og verður raðað í handahófskenndri röð með úrdrætti.

Þeir félagsmenn aðildarfélaga BSRB sem hafa hug á að sækja um íbúð hjá Bjargi eru hvattir til að nota sér reiknivél á vef Bjargs og að skila inn umsókn fyrir lok júlí til að eiga sem mestan möguleika á að fá úthlutað íbúð sem fyrst.

Prófaðu reiknivélina og sendu inn umsókn á vef Bjargs íbúðafélags.

Lóð Bjargs við Urðarbrunn 

Steypuvinna er nú hafin á lóð Bjargs í Urðarbrunni í Úlfarsárdal.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?