Hætt við baráttufund í verkfalli vegna COVID-19

Baráttufundur sem boðað hafði verið til á fyrsta degi verkfalls, mánudaginn 9. mars, hefur verið felldur niður vegna COVID-19 faraldursins.

Aðildarfélög BSRB hafa ákveðið að hætta við áformaðan baráttufund sem boðað hafði verið til í Austurbæjarbíói á morgun, mánudaginn 9. mars klukkan 13. Ástæðan er það hættuástand sem lýst hefur verið yfir vegna COVID-19 faraldursins.

Heilbrigðisyfirvöld hafa beint því til heilbrigðisstétta að forðast fjöldasamkomur og því ljóst að stéttir sem starfa í heilbrigðiskerfinu hefðu ekki getað mætt til fundarins. Þá er ljóst að félagar í aðildarfélögum BSRB eru ómissandi hluti af almannaþjónustunni og því óábyrgt að boða þá til hópfunda og auka þannig líkur á smiti hjá þessum mikilvæga hópi.

BSRB mun leitast við að forðast fjöldafundi þar til ástandið lagast en bandalagið og aðildarfélög þess munu nota aðrar leiðir til að leggja áherslur á kröfurnar, komi til verkfalls. Viðræður við viðsemjendur standa enn yfir, en nánari upplýsingar um stöðuna í kjaraviðræðunum má finna hér.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?