Hátíðarhöld á baráttudegi verkalýðsins

1. maí er alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins.

Alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins verður fagnað á morgun, 1. maí með hátíðardagskrá, kröfugöngum og baráttufundum víða um land. BSRB hvetur allt launafólk til að fjölmenna í sínu bæjarfélagi.

Fulltrúar BSRB munu taka þátt í hátíðarhöldunum. Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, verður annar ræðumanna á baráttufundi á Ingólfstorgi og Magnús Már Guðmundsson, framkvæmdastjóri bandalagsins, ávarpar baráttufund í Árborg. Þá mun Arna Jakobína Björnsdóttir, 2. varaformaður BSRB, ávarpa hátíðarsamkomu í Miðgarði í Varmahlíð.

Að baráttufundi loknum mun BSRB venju samkvæmt bjóða gestum og gangandi upp á kaffi og kökur í húsnæði bandalagsins við Grettisgötu 89. Verið öll velkomin!

Dagskrá 1. maí hátíðarhaldanna í Reykjavík 2019 hefst á því að safnast verður saman á Hlemmi klukkan 13:00. kröfugangan leggur af stað áleiðis niður á Ingólfstorg klukkan 13:30. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur leika í göngunni.

Útifundur á Ingólfstorgi verður settur klukkan 14:10.

Dagskrá fundarins:

  • GDRN
  • Ræða: Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar
  • GDRN
  • Ræða: Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB
  • Bubbi Morthens
  • Samsöngur - Maístjarnan og Internasjónalinn
  • Fundarstjóri: Þórarinn Eyfjörð, framkvæmdastjóri Sameykis – stéttarfélags í almannaþágu

Öll dagskráin verður táknmálstúlkuð og sungið verður á táknmáli í tónlistaratriðum. Nánari upplýsingar má finna á Facebook-viðburði vegna 1. maí.

Yfirskrift dagsins að þessu sinni er: Jöfnum kjörin – Samfélag fyrir alla!

 

Alþýðusamband Íslands hefur tekið saman tilkynningar yfir hátíðarhöld í meira en 30 sveitarfélög á landinu sem við birtum hér að neðan í þeirri von að sem flestir sjái sér fært að mæta.

Hafnarfjörður

Samstöðutónleikar í Bæjarbíói í boði Verkalýðsfélagsins Hlífar og STH (Starfsmannafélags Hafnarfjarðar)
Tónleikarnir hefjast kl. 15:00. Húsið opnar 14:30
Fram koma Mugison, JóiP og Króli og GDRN.
Stutt ávörp flytja Kolbeinn Gunnarsson, formaður Hlífar og Karl Þórsson, formaður STH

Akranes

Safnast verður saman við Kirkjubraut 40, kl. 14:00 og genginn hringur á neðri-Skaga
Hátíðardagskrá í sal Verkalýðsfélags Akraness á 3ju hæð Kirkjubrautar 40 að göngu lokinni
Ræðumaður dagsins: Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélag Akraness
Kvennakórinn Ymur syngur nokkur lög
Kaffiveitingar
Frítt í bíó fyrir börnin í Bíóhöllinni kl. 15:00

Borgarnes

Hátíðar- og baráttufundur hefst í Hjálmakletti kl. 11.00
Ávarp: Eiríkur Þór Theodórsson, formaður ASÍ-UNG
Ræða dagsins: Sigursteinn Sigurðsson arkitekt
Tónlistaratriði: Soffía Björg Óðinsdóttir
Ronja Ræningjadóttir kíkir í heimsókn
Gleðigjafar kór eldri borgara í Borgarnesi syngur og leiðir hópsöng, Internasjónalinn
Súpa og brauð að fundi loknum
Kvikmyndasýning fyrir börn verður í Óðali kl. 13:30, boðið verður upp á popp og ávaxtasafa

Stykkishólmur

Hótel Stykkishólmi kl.13:30
Kynnir: Berglind Eva Ólafsdóttir, SDS
Ræðumaður: Vignir Smári Maríasson
Tónlistaatriði úr tónlistarskóla Stykkishólms
Þórunn Lárusdóttir og Karl Olgeirsson
Kaffiveitingar

Grundarfjörður

Samkomuhúsinu kl.14:30
Kynnir: Garðar Svansson stjórnarmaður
Ræðumaður: Vignir Smári Maríasson
Tónlistaatriði frá tónlistaskóla Grundarfjarðar
Þórunn Lárusdóttir og Karl Olgeirsson
Kaffiveitingar að hætti Gleym-mér-ei

Snæfellsbær

Félagsheimilinu Klifi kl.15:30
Ræðumaður: Vignir Smári Maríasson
Tónlistaskóli Snæfellsbæjar
Þórunn Lárusdóttir og Karl Olgeirsson
Kaffiveitingar að hætti eldri borgara
Sýning eldriborgara
Bíósýning

Búðardalur

Samkoma í Búðardal kl. 14:30
Kynnir Helga Hafsteinsdóttir formaður SDS
Ræðumaður: Sigursteinn Sigurðsson arkitekt
Skemmtiatriði frá Tónlistarskóla Auðarskóla og Helga Möller syngur
Kaffiveitingar að lokinni dagskrá

Ísafjörður

Kröfuganga frá Alþýðuhúsinu kl. 14:00
Lúðrasveit Tónlistarskóla Ísafjarðar verður í fararbroddi undir stjórn Madis Maekalle
Dagskrá í Edinborgarhúsinu:
Kynnir: Finnur Magnússon
Lúðrasveit Tónlistarskóla Ísafjarðar leikur
Ræðumaður dagsins: Sigurður Pétursson, sagnfræðingur
Söngatriði: Kristín Haraldsdóttir
Pistill dagsins: Hálfdán Bjarki Hálfdánsson, formaður FOS-Vest
Kómedíuleikhúsið leikur atriði úr Karíus og Baktus
Kaffiveitingar í Guðmundarbúð
Kvikmyndasýningar fyrir börn í Ísafjarðarbíói kl. 14:00 og 16:00

Suðureyri

Kröfuganga frá Brekkukoti kl. 14.00
1.maí ávarp og konur heiðraðar
Kaffiveitingar verða í Félagsheimili Súgfirðinga
Söngur og tónlistarflutningur
Boðsund barna í Sundlaug Suðureyrar

Blönduós

Dagskráin hefst kl. 15:00
Ræðumaður dagsins: Eiríkur Þór Theodórsson, formaður ASÍ-UNG
Boðið verður upp á frábæra tónlist og söng
Afþreying fyrir börnin
Kaffiveitingar verða að venju í Félagsheimilinu á Blönduósi

Skagafjörður

Hátíðarsamkoma stéttarfélaganna verður haldin í Menningarhúsinu Miðgarði í Varmahlíð
Dagskrá:
Húsið opnar kl. 14:30 og formleg dagskrá hefst kl. 15:00 með hátíðarræðu dagsins
Ræðumaður: Arna Jakobína Björnsdóttir, formaður Kjalar stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu
Geimundur spilar á nikkuna og einnig munu nemendur úr Árskóla og ungliðar í Karlakórnum Heimi flytja lög fyrir samkomugesti
Kaffiveitingar

Akureyri

Göngufólk safnast saman við Alþýðuhúsið 13:30
Kröfuganga kl. 14 (Alþýðuhús–Göngugata–Ráðhústorg–Hof)
Ávarp 1. maí nefndar stéttarfélaganna - Jóhann Rúnar Sigurðsson, FMA
Skemmtiatriði: Örn Smári Jónsson syngur frumsamin lög
Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands, flytur aðalræðu dagsins
Skemmtiatriði: Svenni Þór og Stefánía Svavars
Hátíðardagskrá lokið með sameiginlegum söng á Maístjörnunni Kaffi í Hofi

Fjallabyggð

Dagskrá verður í sal félaganna, Eyrargötu 24b Siglufirði milli kl. 14:30 og 17:00
Flutt verður ávarp stéttarfélaganna
Kaffiveitingar

Húsavík

Hátíðardagskrá í íþróttahöllinni kl. 14:00.
Reynir Gunnarsson syngur Maístjörnuna
Ávarp: Aðalsteinn Árni Baldursson formaður Framsýnar stéttarfélags
Hátíðarræða: Ásdís Skúladóttir leikstjóri og einn stofnenda Gráa hersins
Tónlist: Söngfélagið Sálubót ásamt hljómsveit taka nokkur lög
Söngur og grín: Eyþór Ingi Gunnlaugsson eftirherma og sömgvari
Grín: Guðni Ágústsson í sínu besta formi
Söngur: Grétar Örvarsson og Sigríður Beinteinsdóttir syngja þekkt dægurlög
Meðan á hátíðarhöldunum stendur verður gestum boðið upp á kaffi og meðlæti í boði stéttarfélaganna.

Vopnafjörður

Hátíðardagskrá verður í Félagsheimilinu Miklagarði kl. 14:00
Kaffiveitingar
Tónlistaratriði
Ræðumaður: Kristján Eggert Guðjónsson

Borgarfjörður eystri

Hátíðardagskrá verður í Álfheimum kl. 12.00
Súpa og meðlæti
Ræðumaður: Reynir Arnórsson

Seyðisfjörður

Hátíðardagskrá verður í Félagsheimilinu Herðubreið kl. 15:00
Kaffiveitingar
Skemmtiatriði
Ræðumaður: Sverrir Kristján Einarsson

Egilsstaðir

Hátíðardagskrá verður á Hótel Héraði kl. 10.30
Morgunverður
Tónlistaratriði
Ræðumaður: Sverrir Kristján Einarsson

Reyðarfjörður

Hátíðardagskrá verður í Safnaðarheimili Reyðarfjarðar kl. 15:30
Kaffiveitingar og tónlistaratriði
Tónlistarskóli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar
Ræðumaður: Elías Jónsson

Eskifjörður

Hátíðardagskrá verður í Melbæ Félagsheimili eldri borgara kl. 14:00
Kaffiveitingar og tónlistaratriði
Tónlistarskóli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar
Ræðumaður: Elías Jónsson

Neskaupstaður

Hátíðardagskrá á Hildibrand kl.14:00
Kaffiveitingar
Tónlistaratriði – félags harmónikkuunnenda
Ræðumaður: Bergsteinn Brynjólfsson

Fáskrúðsfjörður

Hátíðardagskrá verður í Félagsheimilinu Skrúði kl. 15:00
Kaffiveitingar
Tónlistarskóli Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar
Ræðumaður: Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir

Stöðvarfjörður

Hátíðardagskrá í Saxa guesthouse kl. 15:00
Kaffiveitingar
Tónlistarskóli Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar
Ræðumaður: Birkir Snær Guðjónsson

Breiðdalsvík

Hátíðardagskrá verður á Hótel Bláfelli kl. 14:00
Kaffiveitingar
Tónlistaratriði
Ræðumaður: Birkir Snær Guðjónsson

Djúpavogur

Hátíðardagskrá verður á Hótel Framtíð kl. 11:00
Morgunverður
Tónlistaratriði
Myndlistasýning grunnskólans
Ræðumaður: Sverrir Mar Albertsson

Hornafjörður

Hátíðardagskrá á Z Bistro kl. 14:00
Kaffiveitingar
Lúðrasveit Hornafjarðar
Ræðumaður: Sverrir Mar Albertsson

Vestmannaeyjar

Kaffisamsæti og dagskrá í Alþýðuhúsinu frá kl. 14
Dagskrá:
Baráttufundur og kaffisamsæti í Alþýðuhúsinu
Fulltrúi verslunarmanna flytur 1. maí ávarpið
Nemendur Tónlistarskóla Vestmannaeyja sjá um tónlistina

Selfoss

Kröfuganga við undirleik Lúðrasveitar Selfoss kl. 11.00 frá Austurvegi 56, að Hótel Selfossi þar sem skemmtun fer fram
Félagar úr Sleipni fara fyrir göngunni á hestum.
Ræðumenn dagsins: Magnús Már Guðmundsson, framkvæmdastjóri BSRB og Álheiður Österby námsmaður
Leikfélag Selfoss sýnir atriði úr leikritinu „Á vit ævintýranna“
Unnur Birna og Dagný Halla Björnsdætur syngja nokkur lög
Kynnir: Gils Einarsson
Teymt undir börnum í Sleipnishöllinni frá kl. 12.30-14.30

Grindavík

Hátíðardagskrá verður í Gjánni Austurvegi 5 kl 15:00
Kaffiveitingar, tónlistaratriði og hoppukastali fyrir yngri kynslóðina.

Reykjanesbær

Hátíðar og baráttufundur í Stapa - húsið opnar 13.45
Guðmundur Hermannsson syngur og spilar ljúf lög
Setning kl. 14:00 - Ólafur Sævar Magnússon FIT
Ræða dagsins, Guðbjörg Kristmundsdóttir formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis
Tónlist: Jóhanna Guðrún og Davíð Sigurgeirsson
Leikfélag Keflavíkur „Allir á trúnó“
Ungmennakórinn Vox Felix Stjórnandi er Arnór B. Vilbergsson
Kaffiveitingar verða í lok fundar
Börnum boðið í Sambíó Hafnargötu á 1. maí
Kynnir: Kristján Gunnar Gunnarsson, VSFK

Sandgerði

Í tilefni af baráttudegi verkafólks 1. maí býður Verkalýðs- og sjómannafélag Sandgerðis upp á kaffi og meðlæti í miðrými Vörðunnar að Miðnestorgi 3 frá kl. 15–17
Dagskrá:
Ávarp
Söngsveitin Víkingarnir
Hljómsveit Guðmundar Ingólfssonar og félagar ásamt Birtu Rós


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?