Hleðslustöðvar fyrir rafbíla við húsnæði BSRB

Hleðslustöðvarnar eru fyrir framan húsnæði BSRB við Grettisgötu 89.

Reykjavíkurborg hefur sett upp tvær hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla og tengitvinnbíla fyrir framan húsnæði BSRB við Grettisgötu 89 sem vegfarendur geta nýtt sér án endurgjalds. Alls er hægt að hlaða fjóra bíla í stæðum við hleðslustöðvarnar.

Það er tilvalið fyrir þá sem eru á umhverfisvænum bílum og eiga erindi við bandalagið, Styrktarsjóð BSRB eða þau aðildarfélög sem eru í húsinu að nýta sér tækifærið og hlaða bílinn á meðan erindum er sinnt.

Fyrst um sinn verður ókeypis að nota hleðslustöðvarnar en greiða verður fyrir bílastæði eins og venjulega. Umhverfisvæn ökutæki geta þó sett klukku í framrúðuna og þar með fengið fyrstu 90 mínúturnar án endurgjalds. Ekki er um að ræða hraðhleðslustöðvar en þær hlaða þó bíla um tvöfalt hraðar en þegar notast er við venjulegar innstungur. Það má því gera ráð fyrir að um þrjár klukkustundir taki að fullhlaða rafmagnsbíl, samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg.

Borgin hefur sett upp sambærilegar hleðslustöðvar víða í miðborginni, til dæmis í bílastæðahús við Vesturgötu og Traðarkoti, í Stjörnuporti, á Vitatorgi og víðar.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?