Höfnum afnámi áminningarskyldu - Herferðin hefst í dag!

Í dag hefst ný herferð BSRB, Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Kennarasambands Íslands gegn fyrirhuguðu afnámi áminningarskyldu á íslenskum vinnumarkaði. Afnám áminningarskyldu felur í sér eina stærstu réttindaskerðingu sem ráðist hefur verið í gagnvart opinberu starfsfólki.

Herferðin beinist að ákvörðun ríkisstjórnar Íslands um afnám áminningarskyldu, en Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra mælti fyrir frumvarpi þar um á Alþingi í gær. Slík aðgerð myndi draga verulega úr starfsöryggi ríkisstarfsmanna. Þá hafa sveitarfélög einnig kallað eftir sambærilegum breytingum, sem gætu haft víðtæk áhrif á starfsfólk um allt land.

 

Ógn við starfsöryggi og sjálfsögð réttindi

Áminningarskylda hefur það hlutverk að tryggja að starfsfólk fái tækifæri til að bæta ráð sitt áður en til uppsagnar kemur. Hún er mikilvæg vörn gegn geðþóttaákvörðunum, misbeitingu valds og óréttlæti á vinnustöðum.

Verði áminningarskyldan afnumin gætu stjórnendur sagt upp starfsfólki án þess að veita því tækifæri til úrbóta. Að mati BSRB, Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Kennarasambands Íslands eykur það verulega líkur á ósanngjörnum og tilhæfulausum uppsögnum.

 

Kolrangar áherslur stjórnvalda

Á sama tíma og stjórnvöld leggja krafta sína í að skerða réttindi opinberra starfsmanna, glíma opinberir vinnustaðir við mikla manneklu, álag og aukin veikindi starfsfólks. Stjórnvöld horfa þannig fram hjá raunverulegum vanda og leggja þess í stað áherslu á að auðvelda uppsagnir.

Reynslan sýnir að þegar áminningar eru veittar liggja orsakir oft ekki eingöngu hjá starfsfólki, heldur einnig í skipulagi vinnu, skorti á upplýsingum eða miklu álagi. Í flestum tilvikum bregst starfsfólk við áminningum og bætir frammistöðu sína.

 

Skref aftur á bak

Ef afnám áminningarskyldu verður að veruleika myndi ráðningarvernd á Íslandi veikjast verulega og verða minni en þekkist almennt á hinum Norðurlöndunum og í öðrum vestrænum ríkjum.

Hér er því um að ræða afturför í réttindum launafólks og sem eykur valdaójafnvægi á vinnumarkaði.

 

Krefjumst þess að frumvarpið verði dregið til baka

Með herferðinni krefjast BSRB, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Kennarasamband Íslands þess að frumvarpið verði dregið til baka. Það er löngu tímabært er að stjórnvöld beini kröftum sínum að því að bæta starfsaðstæður, draga úr álagi og tryggja að hið opinbera geti laðað að og haldið í hæft starfsfólk.

Jafnframt telja bandalögin tímabært að styrkja ráðningarvernd launafólks almennt og færa íslenskan vinnumarkað nær því sem þekkist á Norðurlöndum.

 

Hvetjum fólk til þátttöku

Við hvetjum öll til að taka þátt í herferðinni, deila efni hennar og ræða málið á vinnustöðum og á samfélagsmiðlum.

Kynntu þér málið á góðáminning.is – og sendu stjórnvöldum áminningu!

 

Höfnum afnámi áminningarskyldu