Á undanförnum árum hefur umræða um styttingu vinnuvikunnar verið áberandi víða í Evrópu og mikill áhugi er á að læra af reynslu Íslands. Ísland er eitt fárra landa þar sem vinnuvikan hefur verið stytt með kjarasamningum og reynsla BSRB hefur því vakið athygli víða.
Þann 4. nóvember síðastliðinn fór fram ráðstefna í Stokkhólmi á vegum Friedrich Ebert Stiftung þar sem fjallað var um styttingu vinnuvikunnar og jafnrétti kynjanna.
Dagný Aradóttir Pind, lögfræðingur BSRB, flutti erindi á ráðstefnunni þar sem hún fór yfir aðdraganda og innleiðingu styttingar vinnuvikunnar á Íslandi. Hún fjallaði meðal annars um tilraunaverkefni BSRB með Reykjavíkurborg og ríkinu, gerð kjarasamninganna árið 2020, innleiðingu 36 stunda vinnuviku og reynsluna af styttingunni síðan þá.
Styttri vinnuvika getur stuðlað að jafnari verkaskiptingu
Á ráðstefnunni fluttu einnig erindi fulltrúar stéttarfélaga, meðal annars frá Svíþjóð og Þýskalandi, auk fræðafólks frá háskólum og rannsóknarstofnunum víða um Evrópu.
Mikið var fjallað um ólaunaða vinnu, svo sem heimilisstörf og umönnun, sem konur bera enn meginábyrgð á. Rætt var um hvernig stytting vinnuvikunnar gæti stuðlað að jafnari skiptingu ábyrgðar á heimilisstörfum milli kynjanna. Þegar bæði launuð og ólaunuð vinna er tekin með í reikninginn vinna konur að jafnaði mun lengri vinnudag en karlar.
Þátttakendur voru þó sammála um að stytting vinnuvikunnar ein og sér dygði ekki til að breyta rótgrónum viðhorfum til hlutverka kynjanna.
Auknir möguleikar á fullu starfi
Einnig var fjallað um hátt hlutfall kvenna í hlutastörfum og hvernig styttri vinnuvika gæti auðveldað fleirum að auka starfshlutfall sitt eða vinna fullt starf.
Þetta rímar vel við reynsluna af styttingu vinnuvikunnar á Íslandi. Við innleiðingu styttri vinnuviku í vaktavinnu var öllu starfsfólki í hlutastörfum boðið að hækka starfshlutfall sitt, en konur eru í miklum meirihluta þeirra sem starfa í hlutastörfum.

