Hrina verkfallsbrota eftir tilmæli Sambands íslenskra sveitarfélaga

Á annan tug verkfallsbrota hafa átt sér stað í að minnsta kosti þrettán sveitarfélögum síðustu tvo sólarhringa, en vikurnar þar á undan hafði verkfallsvarsla gengið nokkuð vel og afar fáar tilkynningar borist um brot. Verkfallsbrot í leikskólum hafa verið sérstaklega áberandi síðustu daga, þar sem stjórnendur virðast hafa fengið fyrirmæli um breytingar á skipulagi sem fela í sér verkfallsbrot. Þó einnig hafa borist ábendingar um brot á bæjarskrifstofum og í sundlaugum.

„Eins og greint var frá í hádegisfréttum RÚV höfum við heimildir fyrir því að Samband íslenskra sveitarfélaga hafi í fyrradag boðað stjórnendur leikskóla, þar sem verkföllin hafa áhrif, á fundi með afar skömmum fyrirvara. Fulltrúar í samninganefnd Sambandsins hafi m.a. stýrt fundum þar sem markmiðið virðist hafa verið að leggja línur fyrir leikskólastjórnendur og þeir hvattir til þess að fremja það sem hingað til hefur, að okkar mati, verið talið verkfallsbrot,“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, um stöðuna.

Verkfallsverðir BSRB hafa undanfarna tvo sólahringa orðir varir við miklar breytingar á skipulagi leikskóla frá því sem áður var. Víða hafa verið opnaðar deildir þar sem deildarstjóri er í verkfalli, sem hafa hingað til verið lokaðar. Þá eru börn færð á milli deilda, starfsfólki sem ekki er í verkfalli boðið að taka börnin sín með í vinnu svo það þurfi ekki að vera heima og foreldrar beðnir um að senda börn í leikskólann með nesti þrátt fyrir að matráður sé í verkfalli, en fram til þess höfðu börn verið send heim í hádegismat. Þannig hefur verið ítrekað gengið í störf starfsfólks í verkfalli síðustu daga í að minnsta kosti þrettán sveitarfélögum að áeggjan Sambands íslenskra sveitarfélaga.

BSRB metur þessa háttsemi alvarlega. Samband íslenskra sveitarfélaga sé með beinum hætti að reyna að draga úr áhrifum verkfalla sem eru lögvarin réttindi launafólks. Verið er að taka saman verkfallsbrotin og verður þeim vísað til Félagsdóms verði ekki látið af þeim hið fyrsta.

Þá er sérstaklega alvarlegt að Samband íslenskra sveitarfélaga, sem starfar í umboði sveitarfélaga landsins, telji það réttlætanlegt að beita sér gegn starfsfólki sveitarfélaganna með þessum hætti.

Ábendingar hafa borist um verkfallsbrot í eftirfarandi sveitarfélögum síðustu daga, en verið er að skoða hvort þau séu jafnvel fleiri:

Kópavogur
Garðabær
Árborg
Ölfus
Seltjarnarnes
Hveragerði
Reykjanesbær
Grundarfjörður
Snæfellsbær
Dalvík
Stykkishólmur
Borgarnes
Vestmannaeyjar


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?