Hvað er áminningarskylda opinberra starfsmanna?

Áminningarskyldan er grundvallarþáttur í ráðningarvernd opinberra starfsmanna og tryggir að ekki sé hægt að segja fólki upp án þess að það hafi fyrst fengið skýra áminningu og tækifæri til að bæta úr.

Ef áform stjórnvalda ná fram að ganga, um að afnema áminningarskylduna úr lögum, myndi það veikja stöðu launafólks verulega og auka líkur á ósanngjörnum uppsögnum.

Heildarsamtökin BSRB, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Kennarasamband Íslands hafa sett upp heimasíðu þar sem finna má ýmsar upplýsingar um áminningarskylduna, spurt og svarað og sjónarhorn opinbers starfsfólks á þessi mikilvægu réttindi.

Kynntu þér málið á góðáminning.is