ASÍ og BSRB halda opinn fund um almenna íbúðakerfið og ábyrgð sveitarfélaganna í húsnæðisuppbyggingu í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Fundurinn fer fram þriðjudaginn 28. apríl kl. 9.00 – 10.30 í Eddu og í streymi.
Boðið verður upp á morgunhressingu frá kl. 8.30
Streymt verður frá fundinum hér
Á fundinum verður m.a. kynnt ný greining samtakanna um félagslegt húsnæði og þróun almenna íbúðakerfisins.
Verkalýðshreyfingin hefur í gegnum tíðina lagt ríka áherslu á húsnæðisöryggi launafólks og verið virkur þátttakandi í uppbyggingu og umræðu um húsnæðismál. Samtökin eiga húsnæðissjálfseignarstofnunina Bjarg íbúðafélag fyrir félaga í aðildarfélögum sínum. Bjarg er burðarás í almenna íbúðakerfinu og hefur frá 2016 byggt yfir 1.000 íbúðir fyrir tekjulágt launafólk.
Dagskrá:
8:30 Húsið opnar
9:00 Opnunarávarp - Finnbjörn A Hermannsson, forseti ASÍ
9:05 Saga og tilurð almenna íbúðakerfisins og Bjargs íbúðafélags - Myndband
9:10 Kynning á nýrri greiningu um félagslegt húsnæði og almenna íbúðakerfið
Róbert Farestveit hagfræðingur ASÍ og Jana Víglundsdóttir hagfræðingur BSRB
9:30 Saga íbúa í Bjargi - Myndband
9:35 Húsnæðisstefnu stjórnvalda og hlutverk sveitarfélaga
Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, aðstoðarforstjóri HMS
9:50 Saga íbúa í Bjargi - Myndband
9:55 Pallborðsumræður
Dagur B Eggertsson, formaður aðgerðahóps stjórnvalda í húsnæðismálum
Jón Björn Hákonarson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar og stjórnarmaður í Bjargi
Björn Traustason, framkvæmdastjóri Bjargs íbúðafélags
10:30 Fundarslit
Fundarstjóri er Brynja Þorgeirsdóttir