Íslandsmót iðn- og verkgreina

Íslandsmót iðn- og verkgreina var haldið í Kórnum í Kópavogi í síðustu viku. Mótið er haldið annað hvert ár. Sú nýbreytni var í ár að keppnin stóð yfir í þrjá daga.

Tilgangur keppninnar er meðal annars að kynna og vekja áhuga grunnskólanemenda á iðn- og verknámi og þeim fjölmörgu tækifærum sem nám í greinunum hefur upp á að bjóða. Keppendur takast á við krefjandi og raunveruleg verkefni í samkeppni sem reynir á hæfni, skipulagshæfileika og fagmennsku.

Gestir sem komu, fengu tækifæri til að snerta og prófa hluti undir handleiðslu fagmanna í ýmsum greinum. Grunnskólanemendur voru boðnir sérstaklega velkomnir að þessu sinni.

Niðurstaða í Íslandsmeistaramótinu þar sem keppt var í hjúkrun var að lið Verkmenntaskólans á Akureyri fór með sigur úr bítum. Á meðfylgjandi mynd eru þær Helga Margrét Jóhannesdóttir og Anna Fanney Stefánsdóttir sem skipuðu sigurliðið.

Frekari upplýsingar um Íslandsmótið má sjá á heimasíðu félags iðn og tæknigreina 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?