Íslenska bankakerfið: okur eða almannahagsmunir

ASÍ, BSRB, BHM og Neytendasamtökin standa fyrir morgunverðarfundi um nýútkomna skýrslu um gjaldtöku og arðsemi bankanna þann 3. október kl. 08:30-10:30, í salnum Vox Club á Hilton hóteli. Léttur morgunverður verður í boði frá 08:00.

Hefur bættur rekstur bankanna skilað sér í betri kjörum til viðskiptavina bankanna? Er staða neytenda á íslenskum fjármálamarkaði jafn sterk hér á landi og í löndunum í kringum okkur? Hvernig má auka gagnsæi og styrkja stöðu viðskiptavina bankanna? Hvað geta stjórnvöld gert til að efla samkeppni og neytendavernd?

Á fundinum verður fjallað um niðurstöður nýútkominnar skýrslu starfshóps menningar- og viðskiptaráðherra um gjaldtöku og arðsemi íslensku bankanna. Markmiðið með málþinginu er að dýpka umræðuna um niðurstöður skýrslunnar, fjalla um þær í samhengi við samkeppni og neytendamál og ræða næstu skref fram á við.

Beint streymi verður af fundinum og hann tekinn upp fyrir þau sem komast ekki á staðinn.

Með erindi á fundinum verða Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, Þórunn Anna Árnadóttir, forstjóri Neytendastofu, Inga Dröfn Benediktsdóttir, forstöðumaður í viðskiptaháttaeftirliti hjá Fjármálaeftirlitinu, Haukur Skúlason, framkvæmdastjóri og annar stofnandi Indó, Auður Alfa Ólafsdóttir, sérfræðingur hjá ASÍ og Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna. Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra ávarpar fundinn í byrjun. Í lok fundarins verður pallborðsumræður.

Í pallborði verða: Gylfi Magnússon, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, Auður Alfa Ólafsdóttir, sérfræðingur hjá Alþýðusambandi Íslands og Haukur Skúlason, framkvæmdastjóri Indó.

Öll velkomin.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?