Jafnréttisþing 2015

Jafnréttisþing verður haldið þann 25. nóvember. Á jafnréttisþingi leggur félags- og húsnæðismálaráðherra fram skýrslu um stöðu og þróun jafnréttismála 2013–2015 en boðað er til þingsins í samræmi við lög nr. 10/2008, um jafnan rétt og jafna stöðu kvenna og karla. Jafnréttisþing er að þessu sinni haldið í samstarfi við mennta- og menningarmálaráðuneytið og fjölmiðlanefnd.

Hlutverk þingsins er að efna til umræðu milli stjórnvalda og þjóðar um málefni kynjajafnréttis og gefa áhugasömum kost á að hafa áhrif á stefnumótun í jafnréttismálum. Að þessu sinni verður lögð áhersla á stöðu kvenna og kynjaðar birtingarmyndir á opinberum vettvangi. Markmiðið er að varpa ljósi á ólíka stöðu kvenna og karla í fjölmiðlum og kvikmyndum annars vegar og hins vegar að fjalla um umfang og eðli kynbundinnar hatursorðræðu. Jafnréttisþingið er haldið á alþjóðlegum baráttudegi gegn kynbundnu ofbeldi og markar upphaf 16 daga átaksins sem lýkur 10. desember á mannréttindadegi Sameinuðu þjóðanna.

Aðalfyrirlesarar þingsins verða Maria Edström, lektor við Fjölmiðladeild Háskólans í Gautaborg og verkefnisstjóri Nordicom–verkefnis Norrænu ráðherranefndarinnar um aukið jafnrétti í fjölmiðlum, og Anna Serner, forstöðumaður sænsku kvikmyndamiðstöðvarinnar. Kynntar verða niðurstöður nýrra rannsókna um hlut kvenna og karla í íslenskum fjölmiðlum.

Þingstjóri verður Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri.

Fjölmiðlaviðurkenning Jafnréttisráðs verður veitt að lokinni dagskrá þingsins.

Jafnréttisþingið fer fram á Hilton Reykjavík Nordica frá kl. 8:30-16:40 og er öllum opið. Aðgangur er ókeypis en boðið verður upp á hádegsiverð gegn vægu gjaldi.

 

 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?