Kaldar kveðjur til opinberra starfsmanna

Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, ritar grein í Fréttablaðið í dag sem fjallar m.a. um hið neikvæða viðhorf sem víða hefur birst til opinberra starfsmanna að undanförnu. „Niðurrif á störfum opinberra starfsmanna er í raun niðurrif á okkar samfélagsgerð sem fram til þessa hefur byggst upp á jöfnum réttri allra til menntunar, heilbrigðisþjónustu og mannlegrar reisna," segir Elín Björg Jónsdóttir á einum stað í greininni en hana má lesa í heild sinni hér að neðan.

Kaldar kveðjur til opinberra starfsmanna

Neikvæð viðhorf í garð starfsmanna hins opinbera að undanförnu vekja óneitanlega upp nokkrar vangaveltur um í hvaða átt samfélag okkar stefnir. Fram til þessa hefur almenn samstaða ríkt um hvert grunnhlutverk ríkisins á að vera. Það er að veita öllum heilbrigðisþjónustu og umönnun sem á þurfa að halda, tryggja öryggi og veita menntun óháð efnahag og búsetu. Þetta er sú samfélagsgerð sem þróuð hefur verið á Norðurlöndunum og fyrir vikið eru lífsskilyrði hvergi betri í heiminum.

Ýmislegt bendir til að samstaða um hvert hlutverk ríkisins eigi að vera sé ekki lengur til staðar. Reglulega hefur gróflega verið vegið að starfsheiðri starfsmanna ríkis og sveitarfélaga – fólks sem einmitt sinnir þeim störfum sem við byggjum samfélagsgerð okkar á.  Opinberlega er talað um að leita verði leiða til að minnka réttindi þessa fólk, gefið er í skyn að þeir sinni ekki störfum sínum sem skyldi og þeim þurfi að fækka enn frekar.

Yfirgnæfandi meirihluti opinberra starfsmanna sinnir grunnstoðum samfélagsins. Sem dæmi þá manna opinberir starfsmenn lögreglu og slökkvilið, allar heilbrigðisstofnanir landsins, menntastofnanir frá leikskóla og upp í háskóla og sinna allri þeirri þjónustu sem velferðarkerfið veitir. Um 70% starfsmanna hins opinbera eru konur og störf fólksins í almannaþjónustunni er sá grunnur sem við byggjum samfélagsgerð okkar á. Það er hagur heildarinnar að halda úti slíku öryggisneti og það eykur lífsgæði okkar sem þjóðar.

Niðurrif á störfum opinberra starfsmanna er þess vegna í raun niðurrif á okkar samfélagsgerð sem fram til þessa hefur byggst upp á jöfnum rétti allra til menntunar, heilbrigðisþjónustu og mannlegrar reisnar. Við megum ekki fjarlægjast hugsjónina um jöfnuð og hverfa til frekari einstaklingshyggju því félagsleg samheldni skilar samfélaginu mun meiru.

Það er óumdeilt að öflugt velferðarkerfi er grunnur góðra lífsskilyrða okkar og hjarta velferðarkerfisins er fólkið sem innan þess starfar. Þess vegna á starfsfólk hins opinbera betra skilið frá æðstu yfirmönnum sínum en þær köldu kveðjur sem því hafa borist að undanförnu.

Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?