Kallarðu þetta jafnrétti?

Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB

Fyrir 51 ári stöðvuðu konur á Íslandi samfélagið með því að leggja niður bæði launuð og ólaunuð störf. Söguleg samstaða á Kvennafrídeginum fyllti konur bjartsýni um að ekki væri lengur hægt að skella skollaeyrum við kröfum þeirra um jafnrétti. Hlaut ekki öllum að vera orðið ljóst hversu miklu samfélagið tapaði ef það færi á mis við starfskrafta kvenna?

Nú ríflega hálfri öld seinna er jafnrétti enn ekki í augsýn. Konur kalla nú sem áður eftir aðgerðum gegn kynbundnu ofbeldi, launamuni kynjanna og misrétti. Jafnrétti verður ekki einungis metið út frá því hvort konum í leiðtogahlutverkum hafi fjölgað, heldur einnig hvort allar konur, óháð stétt, uppruna eða stöðu, njóti jafnréttis í vinnunni, heima og annars staðar í samfélaginu.

Vinnuheilsa kvenna hefur fengið litla athygli í jafnréttisumræðunni hér á landi þrátt fyrir að konur séu líklegri en karlar til að veikjast til lengri tíma og missa starfsgetu. Rannsókn á vegum Félagsmálaráðuneytis og Vinnueftirlitsins frá 2022 sýnir að konur í kvennastéttum eru líklegri en aðrir á vinnumarkaði til að hafa verið lengi frá vinnu vegna veikinda. Fjórar af hverjum tíu konum sem höfðu verið frá vinnu vegna veikinda töldu veikindin tengjast vinnuaðstæðum. Sambærileg staða er á hinum Norðurlöndunum og hefur það leitt til þess að þróaðar hafa verið fjölbreyttar aðgerðir til að bæta vinnuaðstæður og samskipti starfsfólks á vinnustöðum.

Konur á aldrinum 50­-66 ára eru fjölmennasti hópur fólks á örorkulífeyri og um fjórðungur kvenna á aldrinum 60-66 ára er á örorkulífeyri. Rannsókn Tryggingastofnunar ríkisins frá 2025 sýnir að konur sem verða öryrkjar eftir fimmtugt hafa oftar búið við mikið álag í starfi, lág laun og lakari efnahags- og félagslega stöðu. Þær hafa jafnframt oftar þurft að takast á við krefjandi félagslegar og tilfinningalegar aðstæður í vinnunni, óþægilegar líkamsstellingar, vaktavinnu og langa vinnuviku, auk þess sem þær hafa frekar starfað í heilbrigðis- eða félagsþjónustu.

Þær hafa einnig verið líklegri til að vera einstæðar mæður eða búið einar, hafa sinnt börnum að mestu einar, glímt við fjárhagsörðugleika og búið við minna húsnæðisöryggi. Þær eru einnig líklegri til að hafa orðið fyrir ofbeldi, átt langveik börn eða börn sem glíma við fíknivanda.

Vinnuaðstæður, laun og félagsleg og efnahagsleg staða hafa afgerandi áhrif á heilsu og frelsi kvenna. Við vitum hvað þarf að gera til að rétta stöðu þeirra. Það sem skortir er ekki þekking heldur vilji til aðgerða. Konur greiða fyrir aðgerðarleysið með heilsu sinni og starfsgetu.

Kallarðu það jafnrétti?

 

Greinin birtist í Morgunblaðinu 24. október 2026