Kjarasamningur BSRB við Samband íslenskra sveitarfélaga samþykktur

Atkvæðagreiðslum um kjarasamning ellefu aðildarfélaga BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga lauk á hádegi í dag, mánudaginn 19. júní. Mikill meirihluti samþykkti samninginn hjá þeim ellefu aðildarfélögum BSRB sem samningurinn nær til:

Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi, 95,92% samþykktu
FOSS – stéttarfélag í almannaþjónustu, 90,33% samþykktu
Kjölur – stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu, 91,7% samþykktu
Starfsmannafélag Garðabæjar: 88,54% samþykktu
Starfsmannafélag Suðurnesja, 94,16% samþykktu
Starfsmannafélag Vestmannaeyja, 95,1% samþykktu
Starfsmannafélag Mosfellsbæjar, 90,83% samþykktu
Starfsmannafélag Kópavogs, 92% samþykktu
Starfsmannafélag Húsavíkur, 93,33% samþykktu
Starfsmannafélag Hafnafjarðar, 91,02% samþykktu
Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu (Seltjarnarnes og Akranes), 87,96% samþykktu

Mánaðarlaun hækka samkvæmt samningi um að lágmarki 35.000 kr. og desemberuppbót á árinu 2023 verður 131.000 kr. Samkomulag náðist einnig um sáttagreiðslu að upphæð 105.000, auk þess sem var samið um hækkun á lægstu launum og viðbótargreiðslur fyrir tiltekin starfsheiti. Samningurinn gildir frá 1. apríl 2023 til 31. mars 2024.

„Niðurstaðan er afgerandi og endurspeglar að félagsfólk er hóflega sátt með þennan samning. Það er óþolandi að það hafi þurft svo umfangsmiklar aðgerðir til að ná fram réttlátum og sanngjörnum kröfum þeirra. Verkföllin skiluðu þó meira en kjarabótum því þau sýndu sveitarfélögunum svart á hvítu hversu ómissandi starfsfólk þeirra er. Með þessum kjarasamningum var tekið skref í rétta átt til að launin endurspegli raunverulegt verðmæti þeirra starfa – en baráttan heldur áfram og við höfum þegar hafið undirbúning fyrir gerð næstu kjarasamninga.“ Sagði Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, um niðurstöðurnar.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?