Kyn, starfsframi og laun

Morgunverðarfundur verður haldin þann 20. maí 2015 kl. 08.00 – 10:00 á Grand Hótel Reykjavík þar sem kynntar verða niðurstöður rannsóknar um kynbundinn launamun og skýrsla um stöðu kvenna og karla á vinnumarkaði

Aðgerðahópur stjórnvalda og samtaka aðila vinnumarkaðarins var skipaður þann 20. desember 2012 í tilraunaskyni til tveggja ára. Í október 2014 var skipunartími hans framlengdur um tvö ár. Verkefni aðgerðahópsins eru meðal annars að vinna að samræmingu rannsókna á kynbundnum launamun, annast kynningu og fræðslu vegna innleiðingar jafnlaunastaðals, upplýsingamiðlun og ráðgjöf um launajafnrétti og gerð áætlunar um uppbrot hins kynskipta vinnumarkaðar.

Á morgunverðarfundinum verða kynntar niðurstöður rannsóknaverkefna aðgerðahópsins og rætt um framtíðaráskoranir í  launajafnréttismálum á íslenskum vinnumarkaði. Dagskrá fundarins verður sem hér segir:

8:00-8:30          Skráning

8:30-8:40          Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra. Ávarp

8:40-8:55          Sigurður Snævarr, hagfræðingur. Niðurstöður rannsóknar um kynbundinn launamun

8:55-9:10          Dr. Katrín Ólafsdóttir, lektor í hagfræði við Háskólann í Reykjavík.
Er jafnrétti í augsýn? Staða kvenna og karla á íslenskum vinnumarkaði

9:10-9:25          Dr. Kolbeinn Stefánsson, félagsfræðingur.
Skipting heimilisstarfa og ráðstöfun heimilistekna

9:25-09:40       Guðný Einarsdóttir, sérfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu.  Aðgerðir aðgerðahóps um launajafnrétti —­ framtíðaráskoranir í launajafnréttismálum

09:40-10:00     Fyrirspurnir og umræður

Fundarstjóri: Siv Friðleifsdóttir

Morgunverðarhlaðborð er innifalið í þátttökugjaldi, kr. 5.000.
Morgunverður er framreiddur frá kl. 8:00.

Skráning hér

 

 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?