Kynbundinn launamunur eykst milli ára hjá SFR

Barist hefur verið gegn kynbundnum launamun lengi.

Kynbundinn launamunur hefur aukist milli ára hjá félagsmönnum SFR sem starfa hjá ríki og sjálfseignarstofnunum þrátt fyrir áralanga baráttu við að eyða launamuninum. Á sama tíma hefur launamunurinn minnkað verulega hjá félögum í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar.

Þetta má lesa úr niðurstöðum nýrrar launakönnunar SFR stéttarfélags og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar (St.Rv.) sem kynntar voru í vikunni.

Niðurstöður launakönnunarinnar sýna að kynbundinn launamunur er nú 13% hjá félögum í SFR þegar tekið hefur verið tillit til þeirra þátta sem áhrif hafa á laun (vinnutíma, vaktavinnu, mannaforráða o.fl.) Lægstur var kynbundinn launamunur árið 2013 eða 7% og hafði þá lækkað nokkuð hratt frá hruni. Nú hefur hann hins vegar aukist aftur og mælist nú 13% og er orðinn sambærilegur því sem var fyrir hrun.

Kynbundinn launamunur hjá félögum í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar hefur hins vegar lækkað jafnt og þétt síðast liðin ár. Launamunurinn hefur farið frá því að vera tæp 9% árið 2013 niður í það að vera nú í sögulegu lágmarki eða 4% hjá félagsmönnum í heild. Þegar félagsmenn sem starfa hjá Reykjavíkurborg eru teknir út þá mælist kynbundinn launamunur þar 1,3%.

Karlar fá hlunnindi og aukagreiðslur

Mikill munur er á aukagreiðslum og hlunnindum milli kynja, en meiri hjá SFR en St.Rv. Mun algengara er að karlar fái slíkar greiðslur en konur. Þessar niðurstöður sýna okkur svart á hvítu að ástæður fyrir kynbundnum launamun má finna að stórum hluta í launasetningu innan stofnananna sjálfra. Munurinn virðist fyrst og fremst verða til á borði stjórnenda og kemur meðal annars fram í hærri aukagreiðslum til karla en kvenna.

Samanburður launa við önnur félög er afar mikilvægur þáttur í niðurstöðum könnunarinnar, en VR, SFR og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar gera samskonar könnun hjá sínum félagsmönnum. Með þeim samanburði má varpa ljósi á launaþróun á milli opinbera og almenna vinnumarkaðarins.

Launamunur á milli markaða minnkar

VR félagar hafa alltaf mælst með hærri laun en félagar á opinberum markaði þau ár sem félögin hafa gert slíkar kannanir. Munurinn hefur minnkað örlítið milli ára og eru VR félagar nú með 14% hærri laun en félagar í SFR en 16% hærri en félagsmenn St.Rv. félagar, þegar tekið hefur verið tillit þeirra þátta sem áhrif hafa á laun.

Það er sannarlega ánægjulegt að sjá bilið minnka örlítið enda hafa félögin lagt ofuráherslu á að útrýma launamuninum milli almenna og opinbera vinnumarkaðarins. Það er hins vegar augljóst að betur má ef duga skal. Félögin munu nú taka þessar niðurstöður með okkur inn í umræður um launamun milli atvinnumarkaða og leiðréttingu hans enda augljóst að 14 til 16% launamunur milli opinbera og almenna atvinnumarkaðarins er óásættanlegur.

Nánari niðurstöður má skoða á vef SFR og vef Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?