Kynningarfundir fyrir sjóðfélaga LSR

Þeir sem greiða í A-deild LSR ættu að kynna sér hvernig breytingar á lögum um lífeyrissjóði opinberra starfsmanna hafa áhrif á þá.

Breytingar sem verða á lífeyrismálum opinberra starfsmanna sem greiða í A-deild LSR verða kynntar á opnum fundum sjóðsins í öllum landshlutum næstu vikurnar.

Haldnir verða fundir í Reykjavík þann 10. maí og 23. maí. Fundað verður á Akureyri þann 11. maí, Ísafirði 15. maí og á Egilsstöðum 22. maí.

Á vef LSR kemur fram að breytingarnar fyrir núverandi sjóðfélaga eru einkum eftirtaldar:

  • Með framlagi ríkisins í lífeyrisaukasjóð er núverandi sjóðfélögum tryggð áfram óbreytt ávinnsla framtíðarréttinda og óbreyttan lífeyristökualdur við 65 ár.
  • Ekki verður gerð breyting á þegar áunnum réttindum núverandi sjóðfélaga við upptöku á breyttu fyrirkomulagi, hvorki þeirra sem eru í starfi í dag, byrjaðir að taka lífeyri eða eiga eldri réttindi hjá sjóðnum. Þau réttindi verða áfram reiknuð í jafnri réttindaávinnslu og miðuð við 65 ára lífeyristökualdur.
  • Ef þær forsendur sem miðað er við, m.a. forsendur um ávöxtun, ganga ekki eftir, kann í framtíðinni að koma til breytinga á áunnum réttindum, annað hvort til hækkunar eða lækkunar. Þetta á ekki við um þá sem byrjaðir eru að taka lífeyri, eða verða orðnir 60 ára við gildistöku breyttra reglna 1. júní n.k. og hafa þar af leiðandi rétt á að hefja töku lífeyris.

Þar segir jafnframt að áhrif breytinga á nýja sjóðfélaga, sem hefja greiðslur eftir 1. júní, séu einkum eftirtaldar:

  • Nýir sjóðfélagar ávinna sér réttindi í aldurstengdu réttindakerfi og lífeyristökualdur verður miðaður við 67 ára aldur.

BSRB hvetur félagsmenn sem greiða í A-deild LSR til að mæta á fundi og kynna sér breytingarnar.

Nánari upplýsingar um fundarstað og fundartíma má finna á vef LSR.

Skoðaðu spurningar og svör um lífeyrismál á vef BSRB.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?