Loftlagsgangan á sunnudag

Loftlagsgangan í Reykjavík fer fram næsta sunnudag, þann 29. nóvember, göngum við Loftslagsgönguna í Reykjavík. Gangan er hluti af alþjóðlegri hreyfingu, Global Climate March, og ein af ríflega 1.500 göngum sem gengnar verða víða um heim sama dag.

Markmiðið er að krefja þau ríki sem sækja loftslagsfund Sameinuðu þjóðanna, sem hefst í París degi síðar, um að koma í veg fyrir hættulegar loftslagsbreytingar með því að hætta að brenna jarðefnaeldsneyti. Önnur meginkrafa er að iðnríki veiti þriðjaheimsríkjum sem verst verða úti vegna áhrifa loftslagsbreytinga nægilegan fjárstuðning til að að aðlagast nýjum og erfiðum aðstæðum og geri þeim jafnframt kleyft að nýta hreinar og endurnýjanlegar orkulindir í framtíðinni.
 
Göngurnar hafa þó flestar einnig staðbundnar kröfur. Kröfur Loftlagsgöngunnar í Reykjavík eru þríþættar:

  1. Að Ísland axli ábyrgð sína í loftslagsmálum og skuldbindi sig í París til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um að minnsta kosti 40% fyrir árið 2030 – óháð markmiði ESB um 40% samdrátt í losun.
  2. Ennfremur beri Íslandi að stefna að kolefnishlutleysi fyrir árið 2050 líkt og mörg önnur lönd gera.
  3. Þá krefjumst við þess að hætt verði við öll áform um olíuleit og -vinnslu á Drekasvæðinu enda ljóst að þau áform samræmast á engan hátt því markmiði að draga úr notkun á jarðefnaeldsneyti.

 
Safnast verður saman kl. 14 á hinu svokallaða „Drekasvæði“ fyrir framan söluturninn Drekann á horni Kárastígs, Frakkastígs og Njálsgötu, ganga þaðan upp Kárastíg og síðan niður Skólavörðustíg og enda á kröfufundi á Lækjartorgi. Ræðumenn verða Hrönn Egilsdóttir doktorsnemi sem rannsakar áhrif súrnunar sjávar og Bragi Páll ljóðskáld.

 

 

 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?