LSR með kynningarfundi um lífeyrismál í maí

Kynningarfundirnir eru haldnir dagana 20. til 22. maí.

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, LSR, mun bjóða upp á þrjá fræðslu- og kynningarfundi fyrir virka sjóðfélaga í A- og B-deild í húsnæði sjóðsins við Engjateig í næstu viku.

Á fundunum, sem sjóðurinn heldur árlega, verður fjallað um uppbyggingu réttindakerfisins, iðgjaldaskil, lífeyristökualdur og áætlaðar lífeyrisgreiðslur.

Haldnir verða tveir fundir fyrir hvern hóp sjóðfélaga.

  • 20. maí fyrir sjóðfélaga sem greiða í B-deild LSR.
  • 21. maí fyrir sjóðfélaga sem greiða í A-deild LSR.
  • 22. maí fyrir sjóðfélaga sem greiða í A-deild LSR.

Boðið er upp á tvær tímasetningar á hverjum fundardegi; klukkan 8:30 til 10:00 og klukkan 16:30 til 18:00. Fundirnir fara fram í húsnæði LSR að Engjateigi 11 í Reykjavík.

Sjóðfélagar eru beðnir um að skrá sig á fundinn með því að hringja í síma 510 6100 eða með því að senda tölvupóst á netfangið lsr@lsr.is og tilgreina nafn, kennitölu og val á tímasetningu. Nánari upplýsingar má finna á vef LSR.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?