Málþing trúnaðarmanna BSRB 2026

BSRB heldur málþing trúnaðarmanna fimmtudaginn 3. september á Hilton Reykjavík. Þar koma trúnaðarmenn saman til að hlýða á fræðslufyrirlestra og deila reynslu af sínum mikilvægu störfum sem trúnaðarmenn vinnustaða.

Trúnaðarmenn gegna lykilhlutverki á vinnumarkaði. Þeir standa vörð um réttindi samstarfsfólks, miðla upplýsingum og eru mikilvægur tengiliður milli starfsfólks, stéttarfélaga og stjórnenda.

Dagskráin er byggð á niðurstöðum fræðslugreiningar sem 50 trúnaðarmenn frá öllu aðildarfélögum BSRB unnu á sérstakri vinnustofu sem fram fór í húsnæði BSRB. Á málþinginu verður fjallað um áhrif gervigreindar og tæknibreytinga á störf, lestur og túlkun kjarasamninga, góða vinnustaðamenningu, hinseginleika og sálfélagslegt öryggi trúnaðarmanna. Þá munu trúnaðarmenn deila reynslu sinni og segja frá því hvað skiptir máli í þeirra starfi.

Málþingið stendur frá kl. 10 til 17 á Hilton Reykjavík og er skipulagt af Fræðslunefnd BSRB.

Fundarstjóri er Bjarni Snæbjörnsson

 

Dagskrá

9:30 Skráning og morgunverður

10:00 – 10:30 – Salur HI

  1. Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB
  2. Karl Rúnar Þórsson formaður fræðslunefndar BSRB
  3. Kristbjörgu H. Guðmundsdóttur trúnaðarmaður hjá Landhelgisgæslu Íslands
  4. Kolbrún Ylfa Gissurardóttir trúnaðarmaður slysa- og bráðalegudeildar á Heilbrigðisstofnun Suðurland

10:30 - 11:30 - Málstofur

Gervigreind – áhrif á vinnumarkað – Salur F

Gervigreind og áhrif á vinnandi fólk – hugleiðingar um vinnuvernd,  kjarasamninga og framtíð starfa

Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir Lögfræðingur ASÍ

 

Gervigreind og störfin okkar: Hvað vitum við núna?

Hafsteinn Einarsson – dósent í tölvunarfræði við HÍ

 

Lestur og túlkun kjarasamninga – Salur G

Dagný Aradóttir Pind lögfræðingur BSRB

 

Hvernig búum við til góða vinnustaðamenningu? – Salur HI

Heilbrigð vinnustaðamenning – hvað þarf til?

Sigrún Birna Björnsdóttir sérfræðingur í vinnuumhverfis‑ og jafnréttismálum hjá Kennarasambandi Íslands

 

Er starfsfólk í almannaþjónustu ánægt í starfi?

Dr. Tómas Bjarnson hjá Gallup

 

11:30 – 12:30 Hádegismatur

 

12:30 - 13:00 - Erindi – salur HI

Hinseginleiki og vinnumarkaðurinn

Bjarndís Helga Tómasdóttir, formaður Samtakanna ´78

 

13:00 – 13:30

Óvægin umræða og áreitni í garð opinberra starfsmanna

Þóra Bjarnadóttir lögfræðingur hjá Minjastofnun Íslands og MPA í opinberri stjórnsýslu

 

13:30 – 14:00

Sálrænt öryggi í hlutverki trúnaðarmannsins

Þórkatla Aðalsteinsdóttir sálfræðingur

 

14:00 – 14:30 Kaffipása

 

14:30 – 15:30 Vinnustofur

Gervigreind: Samtal um gervigreind – Salur F

Jana Eir Víglundsdóttir hagfræðingur BSRB

 

Lestur og túlkun kjarasamninga – Salur G

Dagný Aradóttir Pind lögfræðingur BSRB

 

Hvernig búum við til góða vinnustaðamenningu?

Dr. Sigrún Gunnarsdóttir prófessor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og ráðgjafi Vinnueftirlits ríkisins

 

Góð framkvæmd vaktavinnu

Lára María Valgerðardóttir verkefnastjóri og varaformaður Sjúkraliðafélags Íslands og Sigdís Þóra Sigþórsdóttir sérfræðingur í kjaradeild Sameykis

 

15:30 – 16:00 - Samantekt

 

16:00 – 17: 00 - Léttar veitingar