BSRB tók þátt í vinnu stjórnvalda við að marka í fyrsta sinn stefnu til að sporna gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði. Stefnunni fylgir aðgerðaáætlun með 13 aðgerðum, en stefnan og aðgerðirnar eru afrakstur af vinnu samstarfsnefndar stjórnvalda og samtaka aðila vinnumarkaðarins.
Með brotastarfsemi á innlendum vinnumarkaði er átt við athafnir sem brjóta gegn lögum og reglum og sem framkvæmdar eru með kerfisbundnum hætti fyrir fjárhagslegan ávinning þannig að launafólk er misnotað eða samkeppnisstaða skert. Dæmi um slík brot eru félagsleg undirboð, fölsun reikninga eða bókhalds tengt vinnu launafólks, ólöglegar ráðningar eða greiðsla launa utan skráningar, misnotkun á starfs- og dvalarleyfum, mansal í vinnu, sem og önnur alvarleg og ítrekuð brot gegn öryggi, heilbrigði eða félagslegum réttindum starfsfólks á vinnumarkaði.
Stefnan og aðgerðaáætlunin gilda frá árinu 2026 til 2028 og innihalda framtíðarsýn, meginmarkmið og aðgerðir sem flokkast eftir fimm markmiðum:
- Aðgerðir til að ná fram markmiði um að styrkja samstarf stjórnvalda
- Aðgerðir til að ná fram markmiði um öfluga greiningu og miðlun gagna
- Aðgerðir til að ná fram markmiði um vandaða útgáfa dvalar- og atvinnuleyfa sem mætir þörfum á vinnumarkaði
- Aðgerðir til að ná fram markmiði um aukna skilvirkni í beitingu viðurlaga við brotum á vinnumarkaði
- Aðgerðir til að ná markmiði um aukna fræðslu og vitund um réttindi og skyldur á vinnumarkaði
Undir hverri aðgerð eru tiltekin markmið og verkefni til þess að sporna gegn brotastarfsemi á íslenskum vinnumarkaði.
Nánar má lesa um stefnuna, aðgerðaráætlun stjórnvalda á vef Stjórnarráðsins
Stefnan í heild: Stefna og aðgerðaáætlun stjórnvalda gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði