Mikill meirihluti samþykkir verkfallsaðgerðir

Þrjú af aðildarfélögum BSRB sem eiga félagsmenn sem starfa hjá Isavia ohf. hafa í samþykkt boðaðar verkfallsaðgerðir. Félögin sem um ræðir eru Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, Félag flugmálastarfsmanna ríkisins og SFR-stéttarfélag í almannaþjónustu.

Niðurstöður úr atkvæðagreiðslunni er á þann veg að 88% sögðu já, nei sögðu 9%. Auðir og ógildir voru 3%. Á kjörskrá voru 424 og af þeim kusu 365, eða 86%. Af þessu er ljóst að gripið verður til verkfallsaðgerða þann 8. apríl næstkomandi, hafi samningar ekki náðst fyrir þann tíma.

Fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir sem kosið var um eru:

Á tímabilinu frá kl. 04:00 til kl. 09:00,  þriðjudaginn 8. apríl 2014, munu allir félagsmenn félaganna hjá Isavia ohf , leggja niður störf.

Á tímabilinu frá kl. 04:00 til kl. 09:00,  miðvikudaginn 23. apríl 2014, munu allir félagsmenn félaganna hjá Isavia ohf , leggja niður störf.

Á tímabilinu frá kl. 04:00 til kl. 09:00,  föstudaginn 25. apríl 2014, munu allir félagsmenn félaganna hjá Isavia ohf , leggja niður störf.

 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?