Nærri 12 prósent fleiri útskrifaðir hjá VIRK

Aukning varð í fjölda nýrra og útskrifaðra einstaklinga hjá VIRK í fyrra.

Tæplega 12 prósent fleiri útskrifuðust úr starfsendurhæfingu hjá VIRK starfsendurhæfingarsjóði á síðasta ári en árið á undan þrátt fyrir heimsfaraldurinn. Rúmlega 11 prósent fleiri hófu starfsendurhæfingu á síðasta ári en árið 2019, að því er fram kemur í frétt á vef VIRK.

Aukningin hefur verið stigvaxandi milli ára. Alls hófu 2.330 einstaklingar starfsendurhæfingu á vegum VIRK á árinu 2020, 11,4 prósent fleiri en árið á undan. Þá útskrifuðust 1.595 frá VIRK árið 2020, eða 11,7 prósent fleiri en árið 2019. Alls voru 2.611 einstaklingar í starfsendurhæfingarþjónustu á vegum VIRK um áramótin, sem er svipaður fjöldi og um síðustu áramót.

Nú hafa samtals 19.358 einstaklingar hafið starfsendurhæfingu hjá VIRK frá því starfsemi starfsendurhæfingarsjóðsins hófst haustið 2009. 11.710 einstaklingar hafa lokið þjónustu og útskrifast frá VIRK frá upphafi. Um 76 prósent þeirra voru virkir á vinnumarkaði við útskrift, voru með vinnugetu og fóru annað hvort beint í launað starf, virka atvinnuleit eða lánshæft nám.

Árangur og ávinningur af starfsemi VIRK, bæði fjárhagslegur og samfélagslegur, er mjög mikill þar sem starfsemin hefur á undanförnum áratug skilað þúsundum einstaklinga í virka þátttöku á vinnumarkaði. Þennan árangur hafa utanaðkomandi aðilar staðfest. Niðurstöður Talnakönnunar sýna að ávinningurinn af starfsemi VIRK á árinu 2019 nam 20,5 milljörðum og að reiknaður meðalsparnaður samfélagsins á hvern útskrifaðan einstakling frá VIRK nam 14,4 milljónum það ár.

Þá sýna þjónustukannanir VIRK að þátttakendur eru undantekningalítið mjög ánægðir með þjónustuna og telja hana auka verulega bæði lífsgæði sín og vinnugetu.

VIRK er starfsendurhæfingarsjóður stofnaður af aðilum vinnumarkaðarins, þar á meðal BSRB, árið 2009. Hægt er að kynna sér starfsemina á vef sjóðsins.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?