Námskeið á vegum Vinnueftirlitsins

Á vef Vinnueftirlitsins má finna frekari upplýsingar um námskeið á vegum þess. Á næstunni verður boðið upp á  nokkur námskeið og vill Vinnueftirlitið sérstaklega benda á eftirfarandi námskeið um Vinnuslys og vinnuslysarannsóknir.

Þar er fjallað um orsakir og tíðni vinnuslysa, mikilvægi þess að skrá vinnuslys skipulega og miðlun upplýsinga vegna slysa. Einnig er fjallað um nýtingu slysaupplýsinga til forvarnastarfs. Kynntar verða aðferðir Vinnueftirlitsins við slysarannsóknir. Nemendur gera stutta rannsókn á vinnuslysi.

Markmiðið með námskeiðinu er að fækka vinnuslysum og gera vinnuumhverfið enn betra. Hvert námskeið er 4 klukkustundir og byggist upp á fyrirlestrum, myndum, myndböndum og hópverkefnum.

 

Námskeiðið fer fram þann 25 febrúar, kl: 13-17 að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík. Verð er 20.900 á mann

Skráning er á heiðmasíðunni: www.vinnueftirlit.is en einnig er hægt að skrá sig með því að senda tölvupóst á netfangið: vala@ver.is eða í síma Vinnueftirlitsins, 550 4600. 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?