Námskeið um lífeyriskerfið

Nýtt námskeið fyrir talsmenn og áhugafólk um lífeyriskerfið og starfsemi lífeyrissjóða verður haldið í byrjun aprílmánaðar á vegum Félagsmálaskóla alþýðu.

Námskeiðið er tveggja daga yfirlitsnámskeið þar sem farið er yfir helstu þætti er snerta hlutverk og starfsumhverfi lífeyrissjóðanna, fjallað um  réttindakerfið, lagaumhverfi sjóðanna, eignir og fjárfestingarheimildir auk þess sem rætt er um hlutverk stjórnarmanna og hæfi þeirra. 

Námskeiðið er góður inngangur fyrir þá sem vilja kynna sér málaflokkinn og gagnast vel þeim sem áhuga hafa á stjórnarstörfum í lífeyrissjóðunum, tilvonandi stjórnarmönnum, starfsmönnum lífeyrissjóða, fulltrúaráðum lífeyrissjóða, starfs- og stjórnarmönnum stéttarfélaga, fulltrúum í lífeyrisnefndum félaga og öðrum þeim sem hafa áhuga á málefninu. 

Námskeiðið verður haldið dagana 3. – 4. apríl, Borgartúni 30, 6. hæð.

Kostnaður pr. þátttakanda er kr. 60 þúsund, innifalið er matur og námskeiðsgögn.

Síðasti skráningardagur er 26. mars.  Vinsamlegast skráið ykkur í gegnum heimasíðu Félagsmálaskólans, www.felagsmalaskoli.is


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?