Námskeið um starfslok hjá Brú lífeyrissjóði

Næsta námskeið um starfslok hjá Brú verður 17. janúar en einnig verður boðið upp á námskeið 21. febrúar, 14. mars og 11. apríl.

Brú lífeyrissjóður heldur námskeið um lífeyrisréttindi við starfslok fyrir sjóðfélaga Brúar lífeyrissjóðs, Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar og Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar í húsakynnum sjóðsins, Sigtúni 42, Reykjavík, miðvikudaginn 17. janúar.

Á námskeiðinu verður farið almennt yfir helstu lífeyrisréttindi sjóðfélaga, hvar upplýsingar um réttindi er að finna og spurningum svarað sem brenna á sjóðfélögum um lífeyrismál.

Brú lífeyrissjóður rekur þrjár ólíkar deildir með mismunandi réttindakerfum og er námskeiðið því skipt upp eftir því. Takmarkaður fjöldi sæta eru í boði á hvert námskeið og nauðsynlegt að sjóðfélagar skrái þátttöku sína, sem þarf að gera hjá lífeyrissjóðnum.

Námskeið fyrir hverja deild tekur um það bil klukkutíma. Þann 17. janúar verða námskeiðin haldin á eftirfarandi tímum:

  • Klukkan 16:30: B deild – Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar – Lífeyrissjóður starfsmanna Kópavogsbæjar 
  • Klukkan 17:30: A deild
  • Klukkan 18:30: V deild

Næstu námskeið eftir þetta verða 21. febrúar, 14. mars og 11. apríl. Nánari upplýsingar má finna á vef Brúar.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?