Náum sátt um stóru málin

Tilraunir til að mynda nýja ríkisstjórn halda áfram þrátt fyrir að fyrsta atrenna sé runnin út í sandinn. Í grein sem Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, skrifar í Fréttablaðið í dag hvetur hún þá sem taka munu við stjórnartaumunum hér á landi til að vinna að þeim stóru málum sem bíði í sátt í stað átaka.

„Ný ríkisstjórn þarf að leggja strax í þá miklu uppbyggingu á velferðarkerfinu sem kallað hefur verið eftir,“ skrifar Elín Björg. Hún varar við því að leggja í átök við yfirgnæfandi meirihluta þjóðarinnar sem hafni hugmyndum um frekari einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu og hvetur til þess að málefni fjölskyldna verði í forgrunni hjá nýrri ríkisstjórn.

Elín Björg víkur einnig að ákvörðunum kjararáðs um launahækkanir æðstu embættismanna og kjörinna fulltrúa sem valdið hafa ólgu og segir mikilvægt fyrir þá ríkisstjórn sem taka mun við að vinda ofan af þeim hækkunum. „Annars er hætta á að allt fari í bál og brand á vinnumarkaði sem sannarlega eykur ekki stöðugleika eða sátt í samfélaginu,“ skrifar formaður BSRB.

Lesa má grein Elínar Bjargar á Vísi, auk þess sem hún er birt í heild sinni hér að neðan.

Viljum við átök eða samtal?

Síðustu ár hafa íslensk stjórnmál einkennst af hörðum átökum og á köflum óbilgirni. Traustið er horfið og tortryggnin ríkir. Þeir sem vinna að myndun nýrrar ríkisstjórnar verða að bregðast við þessari þróun með því að vinna að þeim stóru málum sem bíða í sátt í stað átaka.

Við erum flest sammála um nauðsyn þess að viðhalda efnahagslegum stöðugleika, en félagslegur stöðugleiki er ekki síður mikilvægur. Ný ríkisstjórn þarf að leggja strax í þá miklu uppbyggingu á velferðarkerfinu sem kallað hefur verið eftir.

Allir virðast sammála um mikilvægi þess að byggja upp heilbrigðiskerfið að nýju. En það skiptir máli hvernig það er gert. Nú þegar kerfið hefur verið skorið inn að beini þykir einhverjum eflaust freistandi að auka einkavæðingu. Um það verður aldrei sátt í samfélaginu. Rannsóknir sýna að rúmlega 80% landsmanna vilja að hið opinbera sjái um heilbrigðisþjónustuna. Eigi sátt að ríkja um heilbrigðiskerfið verður að hlusta á þjóðarviljann og hætta tilraunastarfsemi með einkavæðingu á rekstri.

Ný ríkisstjórn verður að hafa málefni fjölskyldna í forgrunni og byggja upp fjölskylduvænna samfélag. Þar skiptir miklu að bregðast við erfiðri stöðu á húsnæðismarkaði þar sem ungum fjölskyldum er gert erfitt eða ómögulegt að koma þaki yfir höfuðið. Einnig er afar brýnt að bæta fæðingarorlofskerfið verulega.

Miklar launahækkanir sem kjararáð hefur fært æðstu embættismönnum og kjörnum fulltrúum hafa valdið mikilli ólgu og mikilvægt fyrir nýja ríkisstjórn að vinda strax ofan af þeim. Annars er hætta á að allt fari í bál og brand á vinnumarkaði sem sannarlega eykur ekki stöðugleika eða sátt í samfélaginu.

Opinberir starfsmenn skrifuðu nýlega undir samkomulag við ríki og sveitarfélög um samræmingu lífeyriskerfisins. Ný ríkisstjórn þarf að fínpússa frumvarp til að koma því samkomulagi í lög. Þannig má koma í veg fyrir verulegar hækkanir á mótframlagi launagreiðenda í opinberu lífeyrissjóðina um áramót. Verði hækkunin að veruleika mun hún minnka möguleika opinberra starfsmanna á launahækkunum og auka þannig enn á launabilið milli opinbera og almenna markaðarins.

Stóru málin bíða. Vinnum að þeim í sátt.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?