Norræna verkalýðssambandið (NFS) hélt sitt 5. þing í Helsinki 22.–23. september sl. undir yfirskriftinni „Sterkari saman: Hlutverk verkalýðshreyfingarinnar á tímum vaxandi óvissu í öryggismálum“. Á þinginu ræddu fulltrúar heildarsamtaka launafólks á Norðurlöndum um þá óvissu sem nú ríkir í alþjóðamálum, samfélagslegan viðbúnað og hlutverk verkalýðshreyfingarinnar við að tryggja öryggi og réttindi launafólks á óvissutímum.
Meðal helstu umræðuefna voru viðbrögð verkalýðshreyfingarinnar við alþjóðlegri spennu og öryggisógn sem getur valdið samfélagslegum áföllum, truflunum á aðfangakeðjum og öðrum áskorunum sem hafa áhrif á vinnumarkaðinn og samfélög. Verkalýðshreyfingin þarf að vera þátttakandi í viðbúnaði stjórnvalda, veita viðnámsþrótt gegn þeim öflum innanlands sem utan sem grafa undan lýðræði og vinna með atvinnurekendum að því að undirbúa vinnumarkaðinn undir alvarlarlegar krísur.
Fram kom á þinginu að um 75% mannkyns búi við einræði. Enn víðar sé grafið undan lýðræðinu og mannréttindum og að vopnuð átök hafi aldrei verið fleiri. Eitt mikilvægasta hlutverk verkalýðshreyfingarinnar er því að tryggja efnahagsleg og félagsleg réttindi og standa vörð um grunnþætti lýðræðisins. Endurhugsa þurfi það efnahags- og viðskiptamódel sem hefur leitt til þess að auður og völd hafi safnast á fárra hendur, grafið undan lífskjörum almennings og greitt fyrir uppgangi öfgaafla.
Ýmsir norrænir og alþjóðlegir gestir tóku þátt í þinginu, þar á meðal Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, Ann Linde, fyrrverandi utanríkisráðherra Svíþjóðar, Esther Lynch, framkvæmdastjóri Evrópsku verkalýðssamtakanna og Cathy Feingold yfirmaður alþjóðamála hjá AFL-CIO sem eru stærstu heildarsamtök launafólks í Bandaríkjunum. Sameiginlegur þráður í þeirra boðskap voru tengsl félagslegs öryggis við öryggi samfélaga í stærra samhengi
Fulltrúar BSRB á þinginu voru Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, framkvæmdastjóri BSRB og Jana Eir Víglundsdóttir, hagfræðingur.
Í sameiginlegri ályktun þingsins, sem ber yfirskriftina „Enginn viðbúnaður án launafólks“, er skorað á ríkisstjórnir Norðurlandanna og Norrænu ráðherranefndina að tryggja að aðilar vinnumarkaðarins fái skýrt hlutverk í norrænu samstarfi um viðbúnað og birgðaöryggi.
Í ályktuninni er auknu samstarfi ríkjanna um viðbúnað fagnað en jafnframt bent á að samtök launafólks hafi ekki fengið þar sjálfsagðan sess. Starfsfólk gegnir lykilhlutverki við að halda samfélaginu gangandi á óvissutímum, meðal annars í heilbrigðisþjónustu, orkumálum, flutningum og öðrum mikilvægum innviðum. Nýta þarf styrk þríhliða samtals norræna vinnumarkaðsmódelsins til að efla enn frekar viðnámsþrótt Norðurlandanna.

