Ný námskeið um betri tíma í vaktavinnu

Námskeið um betri vinnutíma í vaktavinnu fara fram 8. og 9. desember.

Fræðslusetrið Starfsmennt stendur fyrir námskeiðum fyrir starfsfólk í vaktavinnu þar sem farið verður yfir verkefnið Betri vinnutími í vaktavinnu. Námskeiðin verða haldin 8. og 9. desember. Þau verða kennd í gegnum vefinn og eru þátttakendum að kostnaðarlausu.

Námskeiðin eru hugsuð sem fræðsla til upprifjunar. Farið verður yfir markmið, leiðarljós og forsendur betri vinnutíma í vaktavinnu og farið yfir virkni og mælikvarða verkefnisins síðustu sex mánuði. Kennari á námskeiðunum verður Dagný Aradóttir Pind, lögfræðingur hjá BSRB.

Verkefnið Betri vinnutími í vaktavinnu er samstarfsverkefni opinberra launagreiðenda annars vegar, það er ríkis, Reykjavíkurborgar og sveitarfélaga og BSRB, ASÍ, BHM, og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hins vegar og byggir á breytingum á kjarasamningum sem undirritaðir voru árið 2020. Um er að ræða einhverjar mestu breytingar á vinnutíma í vaktavinnu í tæplega 50 ár. Samningsaðilar óskuðu eftir því við Fræðslusetrið Starfsmennt að það hefði umsjón með fræðslu til að styðja við farsæla innleiðingu breytinganna.

Námskeiðin eru ætluð starfsfólki í vaktavinnu hjá opinberum launagreiðendum og fer skráning fram á vef Starfsmenntar.

Annað stuðningsefni:

 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?