Ný ríkisstjórn þarf að forgangsraða

Þeir flokkar sem mynda munu ríkisstjórn þurfa að standa vörð um grundvallargildi á borð við jöfnuð og félagslegt réttlæti að mati formannaráðs BSRB. Á fundi ráðsins, sem nú er að ljúka, var samþykkt ályktun um stjórnarmyndun.

Í ályktunni er einnig hvatt til þess að áhersla verði lögð á uppbyggingu innviða samfélagsins og bent á að allir flokkar hafi verið sammála um þá þörf í kosningabaráttunni. Formannaráðið telur ljóst að forgangsraða verði í þágu heilbrigðis- og menntamála. Þá þurfi að byggja upp á ný það félagslega öryggisnet sem þurfi að vera til staðar í velferðarsamfélagi.

Lesa má ályktun formannaráðsins í heild sinni hér að neðan.

Ályktun formannaráðs BSRB um stjórnarmyndun

Formannaráð BSRB hvetur þá flokka sem mynda munu næstu ríkisstjórn til að standa vörð um grundvallargildi á borð við jöfnuð og félagslegt réttlæti við gerð stjórnarsáttmála og í vinnu sinni á kjörtímabilinu. Ljóst er að mikil þörf er á að byggja upp innviði samfélagsins, eins og flestir stjórnmálaflokkar voru sammála um í aðdraganda kosninganna. Þar þarf að forgangsraða í þágu heilbrigðis- og menntamála og byggja upp á ný það félagslega öryggisnet sem þarf að vera til staðar í velferðarsamfélagi. Það er grundvallaratriði að þar eigi allir jafnan rétt óháð efnahag og það er stjórnvalda að tryggja að svo sé.

Reykjavík, 24. nóvember 2016


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?