Ný skýrsla Kjaratölfræðinefndar kynnt á fimmtudag

Skýrsla Kjaratölfræðinefndar verður kynnt á fjarfundi.

Ný skýrsla Kjaratölfræðinefndar um kjarasamningslotuna sem hófst vorið 2019 og er senn að ljúka, þróun efnahagsmála og launa verður kynnt fimmtudaginn 28. október næstkomandi.

Um er að ræða haustskýrslu Kjaratölfræðinefndar, sem er samstarfsvettvangur um gerð og hagnýtingu tölfræðigagna um laun og efnahag. BSRB á fulltrúa í nefndinni.

Skýrslan verður kynnt á fjarfundi sem hefst klukkan 10 fimmtudaginn 28. október næstkomandi. Fundinum verður streymt í gegnum vef Kjaratölfræðinefndar. Edda Rós Karlsdóttir, formaður nefndarinnar, mun kynna skýrsluna og gera grein fyrir helstu atriðum hennar og niðurstöðum.

Meðal nýjunga í skýrslunni eru:

  • Launaþróun ASÍ félaga á almennum markaði er birt sundurliðuð eftir Starfsgreinasambandinu, félögum verslunarmanna, og iðnfélögum.
  • Breytingar á grunntímakaupi allra hópa er birt skipt eftir áhrifum vinnutímatímabreytinga og annarra launabreytinga.
  • Samsetning starfa er birt á eftir starfshlutfalli og vinnufyrirkomulagi (þ.e. vaktavinnu).
  • Allir launaþættir eru nú sundurliðaðir eftir konum og körlum.
  • Launastig og launaþróun á Íslandi er sett í alþjóðlegt samhengi.

Tekið verður við fyrirspurnum í gegnum netfangið ktn@ktn.is meðan á fundinum stendur. Fundarstjórn verður í höndum Aðalsteins Leifssonar ríkissáttasemjara.

Í nefndinni sitja fulltrúar heildarsamtaka á vinnumarkaði, ríkis og sveitarfélaga, auk fulltrúa forsætisráðuneytis, félagsmálaráðuneytis og Hagstofu Íslands. Haustskýrslan er þriðja skýrsla nefndarinnar, og stefnt er að því að skýrslurnar verði tvær ár hvert, ein að vori og önnur að hausti.

Skýrslan og tölfræðigögn verða aðgengileg á vef Kjaratölfræðinefndar frá 28. október. Það er von nefndarinnar að sá grunnur upplýsinga og tölfræðigagna sem settur er fram í skýrslunni nýtist haghöfum vel við mat á kjaraþróun og við undirbúning komandi kjarasamninga.

 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?