Opinn fundur á morgun

Jafnréttisnefnd BSRB býður til opins fundar í tilefni kvennafrídagsins föstudaginn 24. október, kl. 12-13 á 1. hæð BSRB hússins að Grettisgötu 89.

Á fundinum mun Guðrún Helgadóttir, rithöfundur og fv. alþingismaður, vera með erindi um reynslu sína af því að vera fyrst kvenna kjörin sem forseti sameinaðs Alþingis á árunum 1988-1991. Sjöfn Ingólfsdóttir, fyrst kvenna til að vera kjörin formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, mun svo taka þátt í pallborðsumræðum ásamt Guðrúnu.

Þeir sem áhuga hafa eru velkomnir að vera viðstaddir fundinn. Fundurinn verður í fundarsal á 1. hæð í BSRB-húsinu Grettisgötu 89 og boðið verður upp á léttar veitingar. Fundargestir eru vinsamlega beðnir um tilkynna þátttöku fyrir hádegi fimmtudaginn 23. október með því að senda póst á asthildur@bsrb.is

Fyrir þá sem ekki komast á staðinn er bent á að hægt verður að fylgjast með fundinum á vefnum. Til að fylgjast með fundinum á vefnum þarf að fara á slóðina straumur.bsrb.is. Nota þarf aðgangsorðið bsrb og lykilorðið er sömuleiðis bsrb. Þegar inn á síðuna er komið þarf að velja valmöguleikann "live streaming" vinstra megin á síðunni.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?