Opinn fundur um virðismat starfa í þágu launajafnréttis

Forsætisráðuneytið býður til opins fundar þar sem rætt verður um virðismat starfa í þágu launajafnréttis. Fundurinn fer fram miðvikudaginn 20. mars nk. kl. 9-11 á Hótel Natura og verður jafnframt í beinu streymi. 

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, mun flytja ávarp á fundinum og Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, kynna skýrslu aðgerðarhóps stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins um launajafnrétti og jafnrétti á vinnumarkaði. Þá mun Steinunn Valdís Óskarsdóttir einnig halda erindi og Helga Björg Ragnarsdóttir, framkvæmdarstjóri Jafnlaunastofu, kynna virðismatskerfi í þágu launajafnréttis. 

Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari mun svo stýra pallborðsumræðum þar sem þátttakendur eru Halldóra Sveinsóttir, ASÍ, Helga Björg Ragnarsdóttir, Jafnlaunastofu, Jökull Heiðdal Úlfsson, skrifstofustjóri Kjara- og mannauðssýslu ríkisins, Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM, Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, og Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB. Fundarstjóri er Þröstur Freyr Gylfason, sérfræðingur hjá Kjara- og mannauðssýslu ríkisins.

Streymi frá fundinum

Virðismat starfa – skýrsla aðgerðahóps um launajafnrétti og jafnrétti á vinnumarkaði

Virðismatskerfi í þágu launajafnréttis – unnið fyrir aðgerðahóp um launajafnrétti og jafnrétti á vinnumarkaði


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?