Opnir fundir í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna

Alþjóðlegur baráttudagur kvenna er haldinn hátíðlegur í 105. sinn í dag. Rosa Pavanelli, aðalritari PSI (Public Service international) segir að ekki verði beðið í 20 ár til viðbótar eftir fullu jafnrétti.

"Jafnrétti kynjanna hefur ekki náðst á síðastliðnum 20 árum. Við þurfum pólitíska, samfélagslega og menningarlegar breytingar og að viðurkenna að stefnur í þágu kvenna og launafólks mun leiða til breytinga. Stéttarfélög gegna lykilhlutverki í þessum efnum. Valdefling kvenna valdeflir sannarlega þjóðfélög," segir Rosa Pavanelli í tilefni 8. mars 2015.

Í tilefni alþjóðlegs baráttudags kvenna fyrir friði og jafnrétti verður efnt til baráttufundar í Iðnó í dag 8. mars, eins og undanfarin ár. Fundurinn ber yfirskriftina Femínismi gegn fasisma. Við munum leita svara við þeirri krefjandi spurningu hvort stjórnmálaþátttaka kvenna eða hugmyndafræði femínismans geti veitt svör eða andspyrnu við vaxandi fylgi hægriöfgaflokka innan Evrópu. Fundurinn verður með hátíðarsniði vegna 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna á árinu og verður því boðið upp á pallborðsumræður að loknum framsögum og gestir hvattir til þess að taka þátt í líflegum umræðum um málefnið. Fundarstjóri er Kolbrún Halldórsdóttir.

Fundurinn hefst klukkan 15.00 og lýkur kl. 17.00. Upplýsingar um fundinn á facebook má finna hér.

Dagskrá:

15.00-15.30 Framsögur

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir
Sólveig Anna Jónsdóttir
Drífa Snædal

15.30-15.45 Spurningar úr sal

15.45 Hljómsveitin Eva spilar

15.55 Kaffihlé

16.15-17.00 Pallborðsumræður.

Gyða Margrét Pétursdóttir stýrir umræðum. Auk framsögukvenna eru þátttakendur í pallborði Margrét Steinarsdóttir og Guðbjörg Sveinsdóttir.

17.00 Hljómsveitin Eva leiðir fjöldasönginn Áfram stelpur!

Að fundinum standa BHM, BSRB, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Femínistafélag Íslands, Félagsráðgjafafélag Íslands, Kennarasamband Íslands, Kvenfélagasamband Íslands, Kvennahreyfing ÖBÍ, Kvenréttindafélag Íslands, Mannréttindaskrifstofa Íslands, Menningar- og friðarsamtökin MFÍK, Reykjavíkurborg, RIKK – Rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands, Samtök hernaðarandstæðinga, SFR, Samtök um kvennaathvarf, Stígamót, STRV, Þroskaþjálfafélag Íslands og W.O.M.E.N.


Þá minnir BSRB á hádegisverðarfund sem haldinn verður á morgun, 9. mars í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Alþýðusamband Íslands, BHM, BSRB, Kennarasamband Íslands, Jafnréttisstofa og Jafnréttisráð til fundarins þar sem fjallað verður um samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs.

Upplýsingar um fundinn á facebook má nálgast hér.

Erindi:
• Vinna Íslendingar of mikið? – Ragnheiður Eyjólfsdóttir, verkefnastjóri hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum.
• Rjúkandi rúst? Fæðingarorlof í hruni og endurreisn – Ingólfur V. Gíslason, lektor í félagsfræði við HÍ.
• Samspil heimilis og vinnu meðal íslenskra hjóna – Þóra Kristín Þórsdóttir, doktorsnemi í félagsfræði.
• Fundarstjóri verður Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leikskólakennara.

Aðgangseyrir er kr. 2600 og innifalin er léttur hádegisverður.

Fundurinn er haldinn á Grand Hótel Reykjavík mánudaginn 9. mars n.k. kl. 11:45-13 í Hvammi

 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?