Ráðstefna BSRB og ASÍ: Hlutverk stéttarfélaga

Ráðstefna ASÍ og BSRB í aðdraganda 1. maí 2015 fer fram á þriðjudaginn kemur, þann 21. apríl á Grand hótel, þar sem fjallað verður um hlutverk stéttarfélaga í samfélaginu.

Á fundinum verður farið yfir hlutverk og starf stéttarfélaga og gerð tilraun til að skýra eðli starfsemi þeirra og þjónustuskyldur við félagsmenn. Útgangspunkturinn er reyna að varpa ljósi hlutverk þeirra á vinnumarkaði, innri starfsemi, þátt þeirra í kjara- og velferðarmálum, en einnig að líta til mikilvægi þeirra fyrir félagsmenn. Tekin verða dæmi um styrkjakerfi félaganna, menntkerfin sem þau hafa byggt upp, starf og hlutverk styrktar- og sjúkrasjóða, starfsmenntunarsjóða og annarra sjóða.

Einnig verður litið til verkefna sem snúa að annarri þjónustu við félagsmenn, réttindagæslu, almenna aðstoð og málarekstur og með því reynt að lýsa stöðu stéttarfélaga í velferðarsamfélagi.

Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 8:00 og hefst formleg dagskrá upp úr kl. 8:20. Fundarstjóri verður Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB en umræðum að loknum erindum verður stýrt af Helga Seljan og Þóru Arnórsdóttur.

Skráning á fundinn fer fram hér og dagskránna má sjá hér að neðan.

Dagskrá 21. apríl frá kl. 08.00-10.00

08.00-08.20         Morgunverður

08.20-08.40         Staða og hlutverk stéttarfélaganna í samfélaginu – Gylfi Arnbjörnsson

08.40-08.55         Stéttarfélögin og félagsmaðurinn – Árni Stefán Jónsson

08.55-09.10         Stéttarfélögin og félagsmaðurinn – Sigurrós Kristinsdóttir

09.10-09.25         Viðbrögð og spurningar

09.25-09.35         Hvernig eiga stéttarfélögin að þróast? - Guðni Gunnarsson

09.35-09.45         Hvernig eiga stéttarfélögin að þróast? – Þórdís Viborg

09.45-09.55         Viðbrögð og spurningar

09.55-10.00         Samantekt og fundarslit – fundarstjóri





























































 

 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?