Raunfærnimat styttir leið í lokapróf hjá Keili

Þeir sem standast raunfærnimat geta hafið nám í Háskólabrú Keilis og stytt sér leið til lokaprófs.

Fræðslusetrið Starfsmennt og Keilir ætla að bjóða félagsmönnum aðildarfélaga BSRB upp á raunfærnimat í nokkrum greinum sem kenndar eru í Háskólabrú Keilis í vor. Þeir sem standast raunfærnimatið geta stytt sér leiðina til lokaprófs.

Umsækjendur þurfa að vera 23 ára eða eldri með samtals þriggja ára starfsreynslu. Þá þurfa þeir að hafa lokið að lágmarki 70 einingum í framhaldsskóla.

Kynningarfundur verður haldinn miðvikudaginn 21. febrúar hjá Starfsmennt í Skipholti 50b í Reykjavík. Aðgangur að fundinum er öllum opinn en skrá verður þátttöku fyrirfram. Opnað verður fyrir skráningar á morgun, 1. febrúar, á vef Starfsmenntar.

Verkefnið er unnið í samvinnu við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og með styrk úr Fræðslusjóði og er raunfærnimatið þátttakendum að kostnaðarlausu.

Reynslan úr skóla lífsins nýtist

Háskólabrú Keilis býður upp á nám fyrir þá sem ekki hafa lokið stúdentsprófi. Að námi loknu uppfylla nemendur inntökuskilyrði í allar deildir Háskóla Íslands. Þá hafa útskrifaðir nemendur fengið inngöngu í nám í öðrum háskólum hér á landi og erlendis. Fyrir þá sem hafa áhuga á námi við Háskólabrúnna er mikilvægast að hafa lokið sex einingum í íslensku, ensku og stærðfræði.

Markmiðið með raunfærnimati er að fólk fái viðurkennt þá færni sem það býr yfir þrátt fyrir að hafa ekki sótt formlegt nám, enda fer nám ekki eingöngu fram innan veggja skóla heldur við ýmsar aðstæður í lífinu. Hægt er að fá nánari upplýsingar á vef Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og á vefnum Næsta skref. Þá má fá frekari upplýsingar um samstarf Starfsmenntar og Keilis hjá Starfsmennt.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?