Sameining Kjalar og St. Skagafjarðar samþykkt

Á aðalfundi Starfsmannafélags Skagafjarðar sem haldinn var 17. febrúar var samþykkt að sameinast Kili stéttarfélagi starfsmanna í almannaþjónustu. Viðræður hafa staðið yfir um nokkurn tíma milli stjórna félaganna og undirrituðu þær samkomulag 23. janúar síðastliðinn þar sem sameiningin var ákveðin.

Með sameiningunni verða félagsmenn Kjalar um 1000 manns og félagið eitt af fimm stærstu félögunum innan BSRB. Starfsmannafélag Skagafjarðar var stofnað árið 1971 og félagsmenn þess voru ríkisstarfsmenn í Skagafirði og starfsmenn hjá Sveitarfélaginu Skagafirði um 160 manns. Fráfarandi formaður félagsins er Árni Egilsson sem tekur sæti í stjórn Kjalar fram að næsta aðalfundi.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?