Samstarf við Lúðrasveit verkalýðsins endurnýjað

Magnús Már Guðmundsson, framkvæmdarstjóri BSRB, og Þórunn Helga Ármannsdóttir, formaður Lúðrasveitar verkalýðsins, undirrituðu í dag samkomulag um áframhaldandi samstarf BSRB og lúðrasveitarinnar vinsælu.

Lúðrasveitin mun því eftir sem áður koma í Félagamiðstöðina við Grettisgötu og leika fyrir gesti og gangandi í  1. maí kaffi BSRB auk þess sem sveitin verður til reiðu að spila við önnur tækifæri eins og hún gerði svo eftirminnilega á baráttufundi BSRB í Bæjarbíó í vor.

Lúðrasveit verkalýðsins á sér merka sögu, en hún var stofnuð árið 1953 og hefur því verið starfandi í á sjöunda áratug. Hún var stofnuð að undirlagi verkalýðshreyfingarinnar til að tryggja að ávallt væri hægt að leita til lúðrasveitar til að taka þátt í kröfugöngunni þann 1. maí ár hvert. Það hefur gengið eftir og er kröfugangan ár hvert leidd af kröftugum lúðrablæstri og trommuslögum Lúðrasveitar verkalýðsins.

Þeir sem vilja njóta tónlistar lúðrasveitarinnar fá til þess frábært tækifæri í byrjun næsta mánaðar en þann 5. desember klukkan 20 heldur Lúðrasveit verkalýðsins jólatónleika í Hörpu. BSRB hvetur áhugasama til að mæta. Nánari upplýsingar um tónleikana má finna hér.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?