Sjúkraliðar samþykkja tveggja daga verkfall

Sjúkraliðar sem starfa á Múlabæ og Hlíðabæ hafa samþykkt tveggja daga verkfall í febrúar hafi ekki samist fyrir þann tíma. Verkfallið mun standa yfir 4. til 5. febrúar frá kl. 8-16. Náist ekki að semja eftir fyrstu verkfallslotuna hefst þriggja daga verkfall 11. febrúar og ótímabundið frá og með átjánda febrúar hafi samningar ekki tekist fyrir þann tíma.

Múlabær er dagþjálfun fyrir aldraða og öryrkja og Hlíðabær er dagþjálfun fyrir fólk sem greinst hefur með heilabilunarsjúkdóma. Báðar stofnanirnar eru í Reykjavík.

Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags Íslands, segir í samtali við fréttastofu Rúv að erfitt hafi reynst fyrir sameiginlega stjórn Múlabæjar og Hlíðabæjar að ná saman löglegum fundi til að klára samningagerð. Því hafi félagið snúið sér til Ríkissáttasemjara. Við síðustu kjarasamninga hafi sjúkraliðar á Múlabæ og Hlíðabæ orðið eftir, ásamt sjúkraliðum sem starfa á stofnunum Félags aðstandenda Alzheimersjúklinga; en verið með gilt samkomulag frá árinu 2008 við félagið um að farið yrði eftir samningum við fjármálaráðuneytið. 


 

 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?