Kjaratölfræðinefnd kynnir skýrslu á miðvikudag

Kjaratölfræðinefnd mun framvegis gefa út tvær skýrslur á ári.

Fyrsta skýrsla kjaratölfræðinefndar, nýs samstarfsvettvangs um gerð og hagnýtingu tölfræðigagna um laun og efnahag, verður kynnt miðvikudaginn 16. september klukkan 11. Í skýrslunni er fjallað um kjarasamningslotuna sem hófst árið 2019, umfang kjarasamningagerðar og þróun efnahagsmála og launa.

Kynningin verður í formi fjarfundar og hlekkur á hann birtur þegar nær dregur. Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra mun ávarpa fundinn og Edda Rós Karlsdóttir, formaður kjaratölfræðinefndar, mun kynna skýrsluna og gera grein fyrir helstu atriðum hennar. Fundarstjórn verður í höndum Aðalsteins Leifssonar ríkissáttasemjara.

Í nefndinni sitja fulltrúar heildarsamtaka á vinnumarkaði, þar á meðal hagfræðingur BSRB, fulltrúar ríkis og sveitarfélaga, auk fulltrúa forsætisráðuneytis, félagsmálaráðuneytis og Hagstofu Íslands. Tekist hefur góð samstaða um þann grunn upplýsinga og tölfræðigagna sem settur er fram í skýrslunni og er það von nefndarinnar að þessi grunnur nýtist hagaðilum vel.

Skýrslan er sú fyrsta í röð skýrslna, en gert er ráð fyrir að nefndin gefi framvegis út tvær á ári og verða þær gerðar aðgengilegar á vef kjaratölfræðinefndar.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?