Sonja Ýr formaður BSRB á vinnufund stjórnar Starfsmannafélags Kópavogs

Stjórn starfsmannafélags Kópavogs ásamt Sonju Ýr Þorbergdóttur formanni BSRB og Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur framkvæmdastjóra BSRB

Starfsmannafélag Kópavogs hélt vinnufund stjórnar og orlofsnefndar 3. nóv. sl.  Af því tilefni bauð Marta Ólöf Jónsdóttir formaður félagsins, formanni og framkvæmdastjóra BSRB í heimsókn í Bæjarlindina.

„BSRB leggur mikla áherslu á að vera í góðu samtali við aðildarfélögin sín og heyra hvaða málefni brenna á félagsfólki og ræða sameiginlegar áskoranir. Slíkt samtal er mikilvægur þáttur í því að styrkja samstarf innan bandalagsins og tryggja að áherslur BSRB endurspegli reynslu og hagsmuni starfsfólks á vinnustöðunum“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB. Hún er um þessar mundir að hitta allar stjórnir aðildarfélga BSRB.