Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB tók þátt í pallborði á ráðstefnunni Hagfræði og samfélagið, sem haldinn var í Háskólanum í Reykjavík miðvikudaginn 26. ágúst.
Ráðstefnan var haldin í tilefni þess að tíu ár eru liðin frá því að kennsla til BSc-gráðu í hagfræði hófst við Háskólann í Reykjavík. Meðal lykilfyrirlesara var Claudia Goldin, prófessor við Harvard-háskóla og handhafi Nóbelsverðlaunanna í hagfræði árið 2023. Goldin fjallaði um aukið sjálfstæði kvenna og minnkandi fæðingartíðni.
Að erindum loknum tóku við pallborðsumræður undir stjórn Katrínar Ólafsdóttur, dósents við viðskipta- og hagfræðideild HR. Þar sátu, auk Sonju, Claudia Goldin, Lawrence F. Katz, prófessor við Harvard-háskóla, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Gylfi Zoëga, prófessor við Háskóla Íslands.
Sonja nýtti tækifærið og kom sjónarmiðum launafólks á framfæri í umræðunum, m.a. áherslum BSRB á að samfélagslegar aðstæður geri fólki kleift að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf. Hún benti á að ákvarðanir og stefnumótun í efnahags- og vinnumarkaðsmálum þurfi að taka mið af jafnrétti og því hvernig hægt sé að byggja upp fjölskylduvænan vinnumarkað.