SRÚ semur við RÚV ohf.

Starfsmannafélag Ríkisútvarpsins hefur undirritað nýjan kjarasamning við Ríkisútvarpið ohf. Samningurinn er um flest sambærilegur þeim samningum sem aðildarfélög BSRB hafa gert undanfarið.

Nýr samningur kveður á um að laun hækki um 2,8% eða að lágmarki 8000. kr. fyrir dagvinnu miðað við fullt starf. Á launum sem eru lægri en 230.000 kr. á mánuði komi sérstök hækkun til viðbótar að upphæð 1.750 kr. Við samþykkt samningsins greiðist 14.600 kr. eingreiðsla miðað við fullt starf í febrúar 2014 en hlutfallslega m.v. starfstíma og starfshlutfall í sama mánuði þar sem það á við.

Samningurinn gildir frá 1. febrúar 2014 til 28. febrúar 2015.

Helstu atriði samningsins eru:

  • að laun hækki um 2,8% eða að lágmarki 8000. kr. fyrir dagvinnu miðað við fullt starf. Á launum sem eru lægri en 230.000 kr. á mánuði komi sérstök hækkun til viðbótar að upphæð 1.750 kr.
  • við samþykkt samningsins greiðist 14.600 kr. eingreiðsla miðað við fullt starf í febrúar 2014 en hlutfallslega m.v. starfstíma og starfshlutfall í sama mánuði þar sem það á við.
  • persónuuppbót verður á samningstímanum 73.600 kr.
  • orlofsuppbót verður á samningstímanum 39.500 kr.
  • samningurinn mun gilda frá 1. febrúar 2014 til 28. febrúar 2015

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?