Starfsmenn í hlutastörfum eiga rétt á kaffitímum

Réttur til að taka kaffihlé á vinnutíma er til staðar í réttu hlutfalli við starfshlutfall fólks í hlutastörfum.

Starfsmenn í hlutastörfum eiga sama rétt og aðrir starfsmenn til að taka kaffihlé á vinnutíma. Réttindin haldast þó í hendur við starfshlutfall þannig að kaffitímarnir verða styttri hjá þeim sem eru í litlu starfshlutfalli.

Almennt er ákvæði í kjarasamningi opinberra starfsmanna þess efnis að á venjulegum vinnudegi skulu vera tveir kaffitímar, 15 mínútur og 20 mínútur, og skuli þeir teljast til vinnutíma. Þannig eru kaffitímar daglega 35 mínútur fyrir fullt starf í dagvinnu. Matartími getur verið 30 til 60 mínútur en almennt telst sá tími ekki til vinnutíma.

Þegar starfsmaður vinnur í hlutastarfi getur verið ágreiningsmál milli hans og vinnuveitanda hvernig skuli fara með kaffitíma. Til eru dæmi þess að starfsmaður í 50 prósent starfi sem þó vinnur heila vinnudaga hafi einungis fengið 17,5 mínútur í kaffihlé hvern vinnudag, en ekki 35 mínútur samkvæmt kjarasamningi. Í þessu sambandi skal hafa í huga að orðalag ákvæðisins í kjarasamningi gerir ráð fyrir því að réttur til 35 mínútna kaffitíma miðast við hvern vinnudag fyrir sig.

Ef starfsmaður vinnur 10 heila daga í mánuði og telst því vera í 50 prósent starfshlutfalli þá á hann samt sem áður rétt á 35 mínútum vegna kaffitíma fyrir hvern unninn vinnudag. Ef starfsmaðurinn hins vegar vinnur hálfan dag alla virka daga, og telst sömuleiðis vera í 50 prósent starfshlutfalli, á starfsmaðurinn hins vegar rétt á 17,5 mínútum fyrir hvern unninn vinnudag.

Það skiptir því ekki máli þegar kemur að rétti til 35 mínútna kaffitíma hversu háu starfshlutfalli starfsmaðurinn er í heldur hvernig vinnutíma er háttað. Ef unnir eru heilir dagar þá er rétturinn til 35 mínútna kaffitíma óumdeildur en ef vinnuframlagi er sinnt með því að vinna hluta úr degi getur rétturinn lækkað sem nemur starfshlutfallinu.

Hér má sjá dæmi um útfærslu á rétti til kaffitíma:

  • Starfsmaður í 50 prósent starfshlutfalli sem vinnur 10 heila daga mánaðarlega: 35 mínútur hvern unninn dag.
  • Starfsmaður í 50 prósent starfshlutfalli sem vinnur 4 klukkustundir alla virka daga: 17,5 mínútur hvern unninn dag.
  • Starfsmaður í 25 prósent starfshlutfalli sem vinnur 5 heila daga mánaðarlega: 35 mínútur hvern unninn dag.
  • Starfsmaður í 25 prósent starfshlutfalli sem vinnur 2 klukkustundir alla virka daga: 8,75 mínútur hvern unninn dag.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?