Starfsnám stuðningsfulltrúa

Stafsnám stuðningsfulltrúa er starfstengt grunnnám fyrir þá sem vilja vinna með fötluðu fólki, öldruðum eða sjúkum og byggja um leið upp starfsferil á félags- og heilbrigðissviði.

Hér er um að ræða 162 stunda grunnnám og 84 stunda framhaldsnám sem kennt hefur verið um árabil en var nýlega uppfært. Það er Starfsmennt sem sér um kennslu námsins og frekari upplýsingar um það má nálgast hér.

Málefni fatlaðra voru nýverið færð frá ríki til sveitarfélaga og hafa viðsemjendur ákveðið að kynna námið sérstaklega fyrir starfsmönnum sveitarfélaga sem tækifæri til að efla sig í starfi. Námið er heildstætt starfsnám þar sem fjallað er um starfsvettvanginn og nýjungar í starfi þeirra sem vinna t.d. á heimilum, sambýlum og innan íbúðakjarna eða sérsniðinna þjónustuúrræða.

Skráning er hafin í námið og stendur umsóknarfrestur til 5. janúar 2015.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?