Stefnumótun í vinnuvernd

Þann 24. október verður haldin ráðstefna um stefnumótun í vinnuvernd til ársins 2020 á Grand Hótel í Reykjavík.

Ráðstefnan hefst kl. 12:15 með „vinnuverndarforrétti“ (léttur hádegisverður) sem verður upphitun fyrir það sem koma skal. Markmið fundarins er að kalla eftir áhersluatriðum í vinnuvernd frá sem flestum aðilum á íslenskum vinnumarkaði.

Fundarhöld hefjast kl. 13 með ávarpi Eyglóar Harðardóttur félags- og húsnæðismálaráðherra. Eftir það verða haldin örstutt inngangserindi um:

  • Samstarf atvinnulífs og Vinnueftirlits
  • Skipulag vinnuverndarstarfs á vinnustöðum
  • Áhættumat á vinnustað
  • Atvinnusjúkdóma og álag
  • Vinnuslys – núll-slysastefnu

Í framhaldi af inngangserindum fer fram umræða á vinnuborðum um stefnumótun í vinnuvernd til 2020. Ráðstefnunni lýkur kl. 16.

Óskað er eftir víðtækri þátttöku aðila vinnumarkaðarins, þjónustuaðila í vinnuvernd, stofnana og fyrirtækja til þess að tryggja að öll sjónarmið komi fram sem skipta máli við þessa stefnumótun.

Ráðstefnan er opin öllum en mikilvægt er að fulltrúar sem flestra aðila taki virkan þátt. Vinsamlegast skráið ykkur sem fyrst. Athugið að þátttaka er ókeypis en vinsamlega skráið samt kennitölu fyrirtækis/stofnunar/félagasamtaka í neðsta skráningarboxið.

Núgildandi vinnuverndarstefna 2009 - 2013.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?